Innlent

Lýst eftir vitnum að banaslysi í Kópavogi

Lögreglustöðin við Hverfisgötu.
Lögreglustöðin við Hverfisgötu.

Lögreglan lýsir eftir vitnum að banaslysi sem varð við Hafnarfjarðarveg við Kópavogslæk aðfaranótt laugardags 21. júní. Fólksbifreið valt með þeim afleiðingum að farþegi í bifreiðinni lést.

Vegna rannsóknar málsins er nauðsynlegt að þeir sem urðu vitni að aðdraganda slyssins hafi samband við lögreglu. Eru þeir vegfarendur, sem kunna að hafa orðið vitni að framangreindu, beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444-1100.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×