Vill að lögreglan kanni stuld á bókhaldsgögnum forsetans 17. desember 2008 10:22 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í símanum. MYND/Stefán „
Forsetinn á þessa stundina við að glíma hnitmiðað áhlaup óvildarmanna, sem á tímum þegar forbyltingin hefur lækkað alla siðræna standarda, virðast hafa komist yfir stolin gögn úr stjórnsýslunni um bókhald þeirra hjóna. Afhverju skoðar lögreglan ekki hver stal bókhaldsgögnum forsetans?" segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra í nýjustu færslu á vef sínum. „Samkvæmt því áhugaleysi virðist yfirmanni löggæslu finnast í góðu lagi þó farið sé inn í opinber skjöl sem ég hefði haldið að þyrfti sérstakan bókhaldslykil til að komast í. Kannski ríkislögreglustjóri sé farinn að virða upplýsingalögin á sinn hátt," bætir ráðherrann við. Össur nefnir ekki sérstaklega hvaða bókhaldsgögn hann eigi við, en Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis birti fyrr í mánuðinum upplýsingar um símakostnað forsetaembættisins. Agnes Bragadóttir vakti máls á þessum fréttaflutningi í grein í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þar furðar hún sig á óráðsíu við rekstur forsetaembættisins. Össur segir hins vegar að forsetinn hafi varist vel, og auðveldlega snúið vörn í sókn. Hann hafi bent á að síðastliðin fimmtán ár hafi engum starfsmanni verið bætt við forsetaembættið, þó umsvifin hafi stórlega aukist.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Írisi Elvu Tíu milljarða króna verk en ljósastýrð gatnamót Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Áherslur meirihlutasáttmálans: Svari ákalli um breytingar Sjá meira