Fjöldi húsa stendur auður á Austurlandi 14. desember 2008 09:00 Á milli 30 og 50 hús standa auð á Fljótsdalshéraði og annar eins fjöldi er í byggingu. fréttablaðið/Kox
Mörg hús standa auð á áhrifasvæði framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun, Fljótsdalshéraði og Fjarðabyggð. Mikil uppbygging var á svæðinu en að framkvæmdum loknum standa húsin auð. Á Fljótsdalshéraði standa á bilinu 30 til 50 íbúðir auðar. Um 10 lóðum hefur verið skilað inn að undanförnu og nemur kostnaður við endurgreiðslu gatnagerðargjalda 12 til 13 milljónum. Þá voru innkallaðar 5 lóðir sem lóða- eða gatnagerðargjöld voru ekki greidd af á réttum tíma. Einhverjum lóðanna hefur verið úthlutað aftur. Að auki eru á milli 40 og 50 íbúðir og einbýlishús í smíðum á ýmsum byggingarstigum í sveitarfélaginu. Íbúar sveitarfélagsins voru 1. desember í fyrra 4.073 og standi 50 íbúðir auðar þýðir það að 81,46 íbúar eru á hverja auða íbúð. Sé þeim 50 sem eru í byggingu bætt við eru 40,75 íbúar á hverja auða íbúð eða í byggingu. Séu þessar tölur heimfærðar á höfuðborgarsvæðið, hvar bjuggu 195.972 á sama tíma, þýðir þetta að 2.406 íbúðir ættu að standa þar auðar og 4.809 auðar og í byggingu.Helga JónsdóttirÁ Reyðarfirði var einnig reistur fjöldi húsa vegna Kárahnjúkavirkjunar og stór hluti þeirra stendur auður. Samkvæmt upplýsingum frá Helgu Jónsdóttur, bæjarstjóra Fjarðabyggðar, er mestur hluti þess húsnæðis þó í leigu. Tólf lóðum hefur verið skilað til sveitarfélagsins á árinu og nema gatnagerðargjöld af þeim nálægt 9 milljónum króna. Helga segir fjárhag sveitarfélagsins þó alltraustan. Tekjur hafi vaxið að undanförnu, ekki síst vegna Alcoa Fjarðaráls, og öflugra sjávarútvegsfyrirtækja. Greiðslubyrði lána sveitarfélagsins sé hins vegar erfið á næsta ári, enda hafi verið mikil uppbygging undanfarið. „Veruleg lán voru tekin til að standa undir þessum fjárfestingum og greiðslubyrði þeirra á næsta ári verður umtalsvert umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir í áætlunum.“ Reiknað er með að taka áætlunina fyrir 18. desember. Stefán Snædal Bragason, skrifstofustjóri Fljótsdalshéraðs, segir að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins verði afgreidd með nokkrum halla. Það skýrist af ört minnkandi útsvarstekjum vegna virkjanaframkvæmda, samdráttar hjá verktakafyrirtækjum og aukins atvinnuleysis í kjölfar gjaldþrota og uppsagna. Ekki verði hægt að afgreiða fjárhagsáætlun fyrir jól. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira