Davíð ber fyrir sig bankaleynd 4. desember 2008 10:29 Davíð Oddsson.
Davíð Oddssson, seðlabankastjóri, neitaði að upplýsa viðskiptanefnd Alþingis á fundi hennar í morgun hvað hann átti við með ummælum sínum sem hann lét falla á fundi Viðskiptaráðs 18. nóvember um að hann hefði vitneskju um hvað hefði ráðið afstöðu breskra yfirvalda þegar hryðuverkalögum var beitt gegn Íslandi. Davíð segir að bankaleynd komi í veg fyrir að hann gefi upp þessar upplýsingar. Fundurinn olli vonbrigðum Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður viðskiptanefndar, segir að fundurinn hafi valdið talsverðum vonbrigðum þar sem Davíð hafi ekki verið reiðubúinn að upplýsa nefndina um ástæður þess sem hann telur vera fyrir því að Bretar beittu hryðjuverkalöggjöf gagnvart Íslendingum. Ágúst segir að Davíð hafi sagt sig vera bundinn trúnaði og ekki geta vitnað í einstaka menn. ,,Hann sagði að bankaleynd ætti við í þessu tilfelli sem er afar óheppilegt í ljósi þess að fram hafa komið ráðherrar sem segjast ekki vita af hverju Bretar beittu lögunum," segir Ágúst og bætir við að afar mikilvægt sé að fá þessar upplýsingar upp á borðið á sama tíma og íslensk stjórnvöld skoði réttarstöðu sína gagnvart Bretum. Afstaða Davíðs óþolandi ,,Það kemur spánskt fyrir sjónir að hann skuli hylja sig á bak við bankaleynd því í ræðunni á fundi viðskiptaráðs sagði hann að bankaleynd eigi ekki við ýmis atriði hvað varðar þetta mál." Ágúst segir að viðskiptanefnd sé engu nær hvað olli ákvörðun Breta því Davíð hafi kosið að deila því ekki með henni og slíkt sé óþolandi.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira