Segir gagnrýni Davíðs óréttláta og óskynsamlega 18. nóvember 2008 18:55
Jón Sigurðsson, stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins, segir gagnrýni Davíðs Oddssonar á eftirlitið bæði óréttláta og óskynsamlega. Það hafi sinnt hlutverki sínu eins og lög kveði á um. Jón segir ekki rétt að eftirlitið hafi ekki staðið sig í að hvetja bankana til að skera stærð sína niður eins og skilja megi á ræðu Davíðs. Seðlabanki og Fjármálaeftirlit hafi bæði hlutverk og hafi unnið náið saman. Aðspurður hvort Seðlabankinn hefði getað sett menn inn í bankana til þess að knýja þá á um að minnka efnahagsreikning sinn segir Jón að það hefði verið svo afdrifarík ákvörðun að viðskipti bankanna hefðu spillst. Benti hann á að það sem menn gætu sagt í luktum herbergjum væri ekki endilega heppilegt að segja á opinberum vettangi. Þá segir hann Fjármálaeftirlitið ekki hafa skellt skollaeyrum við viðvörunum Seðlabankans og segir bankann eiga einn fulltrúa í þriggja manna stjórn Fjármálaeftirlitsins. Og frá því Jón tók við stjórnarformennsku í janúar segist hann ekki hafa heyrt neina slíka tillögu frá Seðlabankanum. Aðspurður telur hann gagnrýni Davíðs ósanngjarna og óskynsamlega. Nú riði á að endurheimta traust á efnahagskerfið og þetta væri ekki leiðin til þess.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira