Segist ekki hafa farið með rangt mál 26. nóvember 2008 11:24 Björn Bjarnason dómsmálaráðherra.
Uppákoman í þinginu í vikunni þar sem Steingrímur J. Sigfússon sagði m.a Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra að „étann sjálfur" fór vart framhjá nokkrum manni. Í kjölfarið gekk formaður Vinstri grænna upp að forsætisráðherra og ýtti all hressilega í öxlina á honum. Björn lét þau orð falla að Steingrímur stæði í vegi fyrir því að áform um hina sérstöku rannsóknarnefnd á vegum þingsins hefði tafist með afstöðu sinni. „Björn Bjarnason bar á mig algjörlega óréttmætar sakir. Hann var í raun með eitthvað slúður um það að ég stæði sérstaklega gegn því að rannsóknarnefndin kæmist á koppinn. Ég sit náttúrulega ekkert þegjandi undan slíku kjaftæði frá honum," sagði Steingrímur í samtali við Vísi í gær. Björn skrifar um málið á bloggsíðu sinni í gærkvöldi. Þar dregur Björn hinsvegar ekkert í land með fullyrðingar sínar í garð Steingríms. „Hitt stenst ekki, að ég hafi farið með rangt mál um, að áform um hina sérstöku rannsóknarnefnd á vegum þingsins hafi tafist vegna afstöðu visntri/grænna undir forystu Steingríms J. Mér skilst hins vegar, að nú sé málið komið á beinu brautina og ber að fagna því" skrifar Björn á síðu sína. Hann segist einnig hafa fengið bréf frá fyrrverandi þingmanni sem segir: „Maður horfði orðlaus á framkomu SJS í þinginu í fréttatíma sjónvarps í kvöld. Held að annað eins hafi aldrei gerst í sölum Alþingis. Hvernig skyldi standa á því að til forystu í flokkunum lengst til vinstri, Alþýðubandalagi og og svo VG veljast ævinlega orðljótustu menn sem náð hafa kosningu á Alþingi. Skrítið.“
Tengdar fréttir Steingrímur: „Éttann sjálfur!“ Steingrímur J. Sigfússon formaður VG, brást ókvæða við þegar Björn Bjarnason sakaði hann um að standa í vegi fyrir því að nefnd verði skipuð til að rannsaka bankahrunið og ástæður þess. Steingrímur sakaði Björn um að fara með þvætting og að því búnu gekk hann að Geir Haarde og virtist ýta við honum þrívegis. 24. nóvember 2008 18:30 Steingrímur: Ég held að Geir sé alveg ómarinn á öxlinni Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna hafnar því með öllu að hafa slegið til forsætisráðherra í umræðum á Alþingi í gær. „Nei nei, það er fjarri öllu lagi. 25. nóvember 2008 13:09 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira
Steingrímur: „Éttann sjálfur!“ Steingrímur J. Sigfússon formaður VG, brást ókvæða við þegar Björn Bjarnason sakaði hann um að standa í vegi fyrir því að nefnd verði skipuð til að rannsaka bankahrunið og ástæður þess. Steingrímur sakaði Björn um að fara með þvætting og að því búnu gekk hann að Geir Haarde og virtist ýta við honum þrívegis. 24. nóvember 2008 18:30
Steingrímur: Ég held að Geir sé alveg ómarinn á öxlinni Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna hafnar því með öllu að hafa slegið til forsætisráðherra í umræðum á Alþingi í gær. „Nei nei, það er fjarri öllu lagi. 25. nóvember 2008 13:09