Lára Ómarsdóttir til liðs við Bubba Morthens 11. nóvember 2008 06:00 Popparar leika á alls oddi Bubbi og Björn Jörundur sungu „Er völlur grær“ og léku á alls oddi þegar þeir, ásamt öðrum þungavigtarmönnum úr rokkinu, kynntu tónleika í Laugardalshöll.
Fremstu popparar landsins voru mættir til að kynna tónleika sem eru liður í allsherjar gleðidegi ætlaðan til að leiða huga almennings frá ömurlegri stöðu efnahagsmála. Lára Ómarsdóttir skipuleggur kynningarmál. „Neineinei, ég er ekki orðin blaðafulltrúi Bubba. Þetta er bara eitthvað sem höfðaði mjög til mín þannig, einn allsherjar gleðidagur og ég ákvað að vera með,“ segir Lára Ómarsdóttir blaðamaður. Lára Ómarsdóttir Segir gleðidaginn vera nokkuð sem höfðar heldur betur til sín. Blaðamannafundur var haldinn á Múlakaffi í gær þar sem einn allsherjar gleðidagur næstkomandi laugardag var kynntur. Hljómsveitirnar og tólistarmennirnir Sálin, Ham, Buff, Baggalútur, Stuðmenn, Ný dönsk, Ragnheiður Gröndal og Bubbi Morthens ætla að troða upp í Laugardalshöll á tónleikum þar sem aðgangur verður ókeypis. „Já, upphaflega kemur hugmyndin frá Bubba. Frábær hugmynd. Ég hef tekið að mér að kynna þetta. Allir gefa vinnu sína, þar á meðal atvinnuleysinginn ég,“ segir Lára og hlær. Sjálf hefur hún verið í deiglunni á undanförnum mánuðum en hún hefur farið með ógnarhraða milli starfa. Frá því að vera fréttamaður á Stöð 2, til þess að vera blaðafulltrúi Iceland Express. Þaðan fór hún á 24 Stundir, sem var lagt niður, þá á Moggann til þess eins að fá uppsagnarbréf þar. Lára lætur þessar vendingar í atvinnumálum ekki draga sig niður. „Ég vil gera eitthvað skemmtilegt í lífinu. Við getum ekki bara legið í volæði og því höfðaði þetta til mín. Þetta verður alveg frábær dagur. Ég hlakka mikið til. Fjöldi fyrirtækja ætla að vera með, bjóða uppá kaffi og með því, bakarar ætla að búa til samstöðubrauð, fullt af fyrirtækjum, góðan skemmtilegan dag. allsherjar samstaða í gleði. Gleyma í smá stund pólitík og skemmta okkur saman,“ segir Lára. jakob@frettabladid.is
Mest lesið Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Lífið Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Lífið Ása Ninna kveður Bylgjuna Lífið Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Lífið Vók Ofurmenni slaufað Gagnrýni „Við viljum alls ekki fá of marga“ Lífið „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Lífið Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Lífið Mannauðsstjórinn segir einnig upp Lífið Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina Lífið Fleiri fréttir Fólk farið að flykkjast í Vaglaskóg Ása Ninna kveður Bylgjuna Will Smith við Davíð Goða: „Haltu áfram að skapa“ Fögnuðu 181 milljarðs samningi með því að sýna Trump á typpinu Love Island-stjörnur komnar í hóp Íslandsvina „Við viljum alls ekki fá of marga“ Mannauðsstjórinn segir einnig upp Þungaður LeBron leggst þungt á LeBron „Hefði ekki getað óskað mér fallegri dags“ Litríkur karakter sem var engum líkur Hulk Hogan er látinn Fyrsta stiklan úr miðaldaþáttum Balta Rene Kirby er látinn Pamela smellti kossi á Neeson Beittu listamönnum sem leynivopni í kalda stríðinu Hlutabréfin rjúka upp eftir að Sweeney fór í gallabuxurnar „Grunar að hann hafi bara vitað upp á hár hvað væri að fara að gerast“ Stjörnubarnið komið í heiminn Telja Ozzy endurfæddan sem Aquaman Skotheld og skemmtileg hlauparáð Devin Booker á Íslandi Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“ Samfélagsmiðlar sýna ekki einmanaleikann Tuttugu ára aldursmunur og ástin blómstrar Robbie verður fimmtíu feta tröllkonan Ein heitasta söngkona landsins á lausu Svona verða stórtónleikar Kaleo í Vaglaskógi Gaf eistum kærastans gælunafn „Þetta hefur öfug áhrif og fólki líður bara verr“ Vera Illuga leiðir áhorfendur gegnum skilnað Sjá meira
Hiti þjóðarsálarinnar mældur: „Allt frá hatrinu á Þjóðhátíðarlögum til vinstriumferðar og píkulistar“