Þurfa aukið samráð við ríkið til að standa undir rekstri 24. nóvember 2008 11:43
Vandséð er hvernig sveitarfélögin geta sett fram fjárhagsáætlanir sem byggja á hallalausum rekstri eins og lög gera ráð fyrir. Þrátt fyrir að ítrasta aðhalds verði gætt í öllum rekstri og ýmsir rekstrarliðir og útgjöld skorin niður, liggur fyrir að það dugar ekki til, eigi að standa við þau meginmarkið að halda úti óskertri grunn- og velferðarþjónustu sveitarfélaganna. Því skiptir höfuðmáli að sveitarfélögin og ríkið séu samstiga í jafnt aðgerðum og áherslum við að tryggja rekstrargrundvöll sveitarfélaganna og treysta um leið þær grunnstoðir sem sveitarfélögin standa fyrir í þjónustu við sína íbúa. Þetta segir í ályktun Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, sem samþykkt var á aðalfundi um helgina. Þar segir að samhliða krefjandi vinnu við að móta og laga daglegan rekstur sveitarfélaganna að nýjum veruleika, þurfi þau að búa sig undir að mæta ört vaxandi atvinnuleysi, þar sem kallað verði eftir aðgerðum af þeirra hálfu. Sveitarfélögin muni beita öllum þeim úrræðum sem þeim séu fær til að leggja sitt af mörkum, en ljóst sé að meira mun þurfa til. Samtök sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu segja að við þessar aðstæður sé nauðsynlegt að sveitarfélögin og ríkisvaldið eigi með sér öflugt og náið samstarf um aðgerðir og viðbrögð sem dregið geta úr þeim vanda sem fyrirsjáanlegur sé að óbreyttu. Aðalfundurinn kallar því eftir því að nú þegar verði komið á fót samráðshópi ríkis og aðildarsveitarfélaga Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu til að móta sameiginlegar aðgerðir ríkis og sveitarfélaganna sem tryggt geti hallalausan rekstur sveitarfélaganna og spornað gegn atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu á næsta ári. Í því sambandi þurfi að horfa til eðlilegrar kostnaðarskiptingar milli ríkis og sveitarfélaga vegna þeirra viðbótarútgjalda sem blasi við sveitarfélögunum vegna velferðarmála, öldrunarmála og fræðslumála, aðgengis sveitarfélaganna að nauðsynlegu fjármagni til að mæta tekjusamdrætti, og framlögum ríkisvaldsins til að viðhalda umfangi mannaflsfrekra framkvæmda s.s. vegna nauðsynlegra samgöngumannvirkja á höfuðborgarsvæðinu.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Fleiri fréttir Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Sjá meira