Geitfjársetur og dýrasælgætisfyrirtæki fá styrki 24. nóvember 2008 15:11 MYND/Kristín Eva
Geitfjársetur, fyrirtæki sem framleiðir dýrasælgæti og annað sem sinnir fjölbreytilegri heimaþjónustu við aldraða, fatlaða og langveika eru meðal þeirra tíu fyrirtækja sem hlutu tveggja milljóna króna styrk frá fjármálaráðuneytinu í dag. Um var að ræða styrki til atvinnumála kvenna og var samtals úthlutað 50 milljónum króna til 56 verkefna. Verkefnin að þessu sinni voru afar fjölbreytt, svo sem þjónusta af ýmsu tagi, framleiðsla, hönnun og félagsleg verkefni.Sem fyrr segir fengu tíu umsækjendur hæsta mögulega styrk, eða tvær milljónir króna. Þar á meðal er geitfjársetrið sem verður miðstöð geitfjárræktunar í landinu þar sem stunduð verður markviss geitfjárræktun, unnar verðar vörur úr afurðum geita og þær seldar á staðnum og í völdum verslunum. Verkefnið snýst enn fremur um að vernda íslenska geitfjárstofninn sem telur einungis 500 dýr. Að setrinu stendur Jóhanna B. Þorvaldsdóttir.Enn fremur fékk fyrirtækið Dýrakotsnammi sambærilegan styrk. Það framleiðir gæða hunda- og kattanammi úr íslenskri lamba-, ungnauta- og ungkálfalifur. Varan er nýnæmi því ekki hefur lifur áður verið nýtt á þennan hátt. Hanna Þrúður Þórðardóttir er forsvarsmaður Dýrakotsnammis.Þá hlutu Hanna Lára Steinson og Dögg Káradóttir styrk fyrir viðskiptahugmyndina Bjarmalund. Hún snýst um að bjóða upp á sveigjanlegar skammtíma- og hvíldarinnlagnir fyrir Alzheimerssjúklinga. Viðskiptaáætlun Bjarmalundar varð í þriðja sæti í samkeppni Innovit sem fór fram vorið 2008.Aðalheiður Þóra Bragadóttir fékk einnig tveggja milljóna króna styrk fyrir fyrirtæki sem sinnir fjölbreytilegri heimaþjónustu við fatlaða, aldraða, langveika og aðra þá sem þurfa stuðning og aðstoð við að búa á eigin heimili. Þjónustan felur í sér aðstoð við atferli daglegs lífs og almenn verk, svo sem að fara út að versla eða stuðning við afþreyingu ýmiss konar og persónulega umhirðu.Þá hlaut Hallfríður Ólafsdóttir, fyrsti flautuleikari Sinfóníuhljómsveitarinnnar, styrk til að koma metsölubók sinni um Maxímús Músíkús á framfæri erlendis í gegnum sérstakt félag sem þegar hefur verið stofnað. Ætlunin er að koma bæði bókinni og tónleikadagskránni á framfæri erlendis og fylgja því eftir með vöruframleiðslu tengdri sögupersónunni og klassískri tónlist. Markmið verkefnisins er fyrst og fremst að kynna klassíska tónlist fyrir börnum ásamt því að framleiða vörur tengdar efninu.Þá hlaut Sóley Elíadóttir leikkona tveggja milljóna króna styrk fyrir fyrirtæki sitt Sóley, grös og heilsa sem framleiðir snyrti- og heilsuvörur úr villtum íslenskum jurtum. Þróa á íslenska barnavörulínu í snyrti- og heilsuvörum þar sem íslenskar jurtir og lífrænar olíur eru notaðar til framleiðslunnar. Þar er um að ræða barnatannkrem, barnasjampó, barnagræðikrem, barnaolíu, barnalíkamskrem og barnasápu svo eitthvað sé nefnt.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Fleiri fréttir Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Sjá meira