Herdís Egilsdóttir fær Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember 2008 16:35
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2008 voru afhent í hátíðardagskrá í hátíðasal Háskóla Íslands í dag. Auk þess voru einnig veittar sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra veitti Herdísi Egilsdóttur kennara Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2008. „Með hverri kynslóð fæðist tungumálið upp á nýtt," segir í rökstuðningi ráðgjafanefndar. „Það þroskast og þróast með nýjum notendum. Tungan er um leið framandi strönd landnema sinna. Grunnskólakennarar þjóðarinnar eru leiðsögumenn í þeirri för". Herdís Egilsdóttir fæddist á Húsavík árið 1934 og var styrkt til náms við Menntaskólann á Akureyri þaðan sem hún lauk stúdentsprófi árið 1952 og ári síðar lauk hún kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands. Árið 1953 hóf hún kennslustörf við Skóla Ísaks Jónssonar og lét af störfum þar árið 1998 eftir 45 ár. Herdís hefur samið fjölbreytt efni fyrir börn, jafnt í máli sem myndum og tónlist, en eftir hana liggur á annan tug barnabóka auk tímaritsgreina. Einnig hefur hún samið efni fyrir útvarp, sjónvarp og leikhúsin í landinu. Á seinni árum er Herdís einna kunnust fyrir verkefni sitt „Litlir landnemar", þar sem leitað er svara við margvíslegum spurningum. Hvernig verður þjóð til? Hvernig kemur þjóð sér upp mannsæmandi lífsskilyrðum? Hvernig velur hún og hafnar eftir aðstæðum og efnahag? Hvernig bregst hún við óæskilegum aðstæðum og freistingum og hvaða gildi hefur hún í hávegum? Verkefnið „Litlir landnemar" fjallar um líf nútímafólks í landi þar sem allt vantar nema gjafir náttúrunnar. Nemendur stofna nýtt samfélag á fjarlægri eyju úti í hafi og þurfa að gera ráð fyrir öllum þeim mögulegu og ómögulegu aðstæðum sem upp koma við landnám. Þannig glíma ungir námsmenn við að móta sitt eigið samfélag með yfirsýn og fjölbreytilegum sjónarmiðum og án þess að einblína á lausnir talnakúnstarinnar. Mannauður þjóðarinnar býr í grunnskólum landsins. Það hefur löngum verið hlutverk barnakennara að ávaxta þennan auð. Það er fulltrúi þeirra sem við heiðrum í dag fyrir hæfileika hennar til að kveikja ljós, áhuga og þorsta eftir þekkingu - til að virkja orkustöðvar æskunnar og veita henni staðgott vegarnesti í hretviðrum lífsins. Herdís Egilsdóttir hlaut í verðlaun eina milljón króna og ritsafn Jónasar Hallgrímssonar í hátíðarbandi. Í reglum menntamálaráðuneytis um verðlaun og viðurkenningar á degi íslenskrar tungu segir að auk Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar sé heimilt að veita sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu. Menntamálaráðherra ákvað að veita tvær viðurkenningar 2008. Önnur er veitt Landnámssetri Íslands í Borgarnesi og hina fær Útvarpsleikhúsið. Á heimasíðu menntamálaráðuneytisins eru frekari upplýsingar um verðlaunin, hátíðardagskrána og aðra viðburði undir merkjum dagsins.
Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Sektaður fyrir að aka á göngugötu Innlent Fleiri fréttir Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Sjá meira