Norðurál vill byggja stærra í Helguvík 16. nóvember 2008 19:27
Norðurál hefur kynnt stjórnvöldum ósk um að álverið í Helguvík verði fjörutíu prósentum stærra en áður var áformað. Líklegt þykir að málið geti leitt til harðra átaka innan Samfylkingarinnar. Framkvæmdir við undirstöður kerskálanna hófust fyrir tveimur mánuðum en eftir að fjármálakreppan reið yfir ákváðu Norðurálsmenn að endurskoða verkefnið. Þeir hafa nú lagt fram nýja verkáætlun sem felur í sér að endanleg stærð álversins verði ekki 250 þúsund tonn heldur 360 þúsund tonn, sem þýðir nýtt umhverfismat. Álverið yrði byggt upp í fjórum níutíu þúsund tonna áföngum, fyrsti áfanginn gangsettur árið 2011 og uppbyggingunni dreift fram til ársins 2014. Norðurálsmenn telja að með þessu náist hagkvæmari stærð, sem auðveldi lánsfjármögnun. Sexhundruð megavatta raforkuþörf kallar á aðkomu allra stóru orkufyrirtækjanna; Hitaveitu Suðurnesja, Orkuveitu Reykjavíkur og Landsvirkjunar, með virkjunum á Reykjanesskaga, Hellisheiði og að öllum líkindum neðri Þjórsá, en einnig er nefndur sá kostur að Landsvirkjun haldi áfram sínu striki fyrir norðan með gufuaflsvirkjunum í Þingeyjarsýslum og flytji orkuna tímabundið suður. Iðnaðarráðherra segir málið hafa verið rætt meðal ráðherra, svo sem á milli sín og fjármálaráðherra og kveðst einnig hafa kynnt það í þingflokki Samfylkingarinnar. Þau rök eru færð með verkefninu að það þýði þrjú til fimm þúsund störf á framkvæmdatíma og tólf til átján hundruð varanleg störf, og fjárfestingu upp á 1,8 milljarða dollara, sem er svipað og lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Menn gefa sér hins vegar að áformin veki litla hrifningu umhverfisráðherra og náttúruverndarsamtaka, og muni leiða til átaka innan Samfylkingarinnar.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira