Reyndi bankaeftirlitsmaðurinn er finnskur 17. nóvember 2008 16:11 Yfirvöld hafa ráðið fyrrum forstöðumann finnska fjármálaeftirlitsins til þess að endurskoða regluverkið í bankakerfinu.
Eins og Vísir sagði frá fyrr í dag hefur Ásmundur Stefánsson fyrrum ríkissáttasemjari verið ráðinn í stöðu virts bankasérfræðings og á að sjá um endurreisn bankanna. Þetta kemur fram í fimmta tölulið viljayfirlýsingar ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Viljayfirlýsingin birtist í heild sinni á dv.is í dag. Þar kemur fram í tíunda tölulið yfirlýsingarinnar að reyndur bankaeftirlitsmaður hafi verið ráðinn til þess að fara yfir regluverkið og starfshætti við bankaeftirlit og leggja til nauðsynlegar breytingar. Þar sem Ásmundur er orðinn formaður bankaráðs Landsbankans mun hann ekki koma að þessum málum. Samkvæmt upplýsingum frá Þorfinni Ómarssyni upplýsingafulltrúa viðskiptaráðuneytisins hefur finnskur sérfræðingur verið ráðinn í stöðu reynda bankaeftirlitsmannsins. Sá mun vera fyrrum forstöðumaður finnska fjármálaeftirlitsins. Hér að neðan má sjá 10. tölulið viljayfirlýsingarinnar og lýsingu á starfi reynda bankaeftirlitsmannsins: „Í framhaldinu munum við endurskoða allt regluumgjörð fjármálastarfsemi og framkvæmd bankaeftirlits til að efla viðbúnað gegn hugsanlegum fjármálakreppum í framtíðinni. Við munum ráða reyndan bankaeftirlitsmann til að fara yfir regluverkið og starfshætti við bankaeftirlit og leggja til nauðsynlegar breytingar. Þessi ráðgjafi mun einkum beina sjónum að reglum um lausafjárstýringu, lán til tengdra aðila, stórar einstaka áhættur, krosseignatengsl og hagsmunaleg sjálfstæði eigenda og stjórnenda. Fyrrverandi yfirstjórnendur og helstu hluthafa í yfirteknu bönkunum sem gerst hafa sekir um afglöp í rekstri eða misnotkun á bönkunum eiga ekki að gegna sambærilegum störfum næstu þrjú árin. Mat þetta, sem gert verður opinbert, á að liggja fyrir í lok mars 2009 (mat á skilvirkni). Við munum ræða sérhverja breytingu á áformum okkar í þessu efni við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.“
Tengdar fréttir Ásmundur er virti bankasérfræðingurinn Í viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum kemur fram að virtur bankasérfræðingur hafi verið skipaður til að stýra endurskipulagningu bankanna. 17. nóvember 2008 14:19 Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira
Ásmundur er virti bankasérfræðingurinn Í viljayfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum kemur fram að virtur bankasérfræðingur hafi verið skipaður til að stýra endurskipulagningu bankanna. 17. nóvember 2008 14:19