Lífið

Helgi Seljan skrifar bók um samskipti sín við Þórhall

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Helga tókst að öngla saman nokkrum krónum fyrir morgunkaffinu. MYND/Páll
Helga tókst að öngla saman nokkrum krónum fyrir morgunkaffinu. MYND/Páll

„Mér finnst Þórhallur vera full yfirlýsingaglaður," segir Helgi Seljan sjónvarpsstjarna úr Kastljósinu. Haft er eftir Þórhalli Gunnarssyni, ritstjóra Kastljóss, í 24 stundum að sú bók sem hann hlakki einna mest til að lesa sé ævisaga Helga. Þar verði víst ekkert dregið undan í hispurslegri frásögn þess unga manns sem af miklu harðfylgi hafi brotist til frægðar en fátæktar.

Helgi segir að fullyrðingar Þórhalls séu ekki alveg úr lausu lofti gripnar og eigi rætur sínar að rekja til umræðna um morgunverðarborð Kastljóssfólks. Hefð sé fyrir því að einhver úr ritstjórninni komi með bakkelsi á fimmtudögum. Þegar röðin var komin að Helga hafi hann sagst vera blankur og ekki viss um að hann gæti keypt neitt með morgunkaffinu. „En ég náði nú að skrapa saman nokkrum krónum fyrir þessu," segir Helgi og kveðst hafa mætt færandi hendi í morgunkaffið.

Helgi, sem er vel þekktur fyrir að sauma að Ólafi F. Magnússyni fráfarandi borgarstjóra, segist ekki búast við því að samskipti hans við borgarstjórana verði fyrirferðarmikil í ævisögunni sem til standi að gefa út. „Þó það séu fjórir borgarstjórar á þessu kjörtímabili þá held ég að ég muni láta mér nægja að gera þeim skil í einni málsgrein," segir Helgi.

Helgi er ekki í vafa um það hvaða átakamálum úr sínu lífi muni verða mest áberandi í bókinni. „Ég mun í það minnsta greina í öllum smáatriðum frá samskiptum okkar Þórhalls og ég er ekki viss um að hann verði sáttur við allt sem að þar verður skrifað," segir Helgi Seljan, laufléttur í bragði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.