Innlent

Hernaðarandstæðingar fagna vopnalausum friðagæsluliðum

Stefán Pálsson er formaður Samtaka hernaðarandstæðinga.
Stefán Pálsson er formaður Samtaka hernaðarandstæðinga. MYND/GVA

Samtök hernaðarandstæðinga fagna ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra að íslenskir friðagæsluliðar munu eftirleiðis ekki bera vopn við störf sín. Samtökin lýsa hins vegar yfir vonbrigðum sínum vegna fregna af vopnaflutningi Icelandair Cargo til Georgíu.

Samtökin hafa um langt skeið gagnrýnt þá hervæðingu sem hefur átt sér stað á vettvagni íslensku friðargæslunnar í utanríkisráðherratíð Halldórs Ásgrímssonar, Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde. Þau telja að byrjað hafi verið að sveigja frá þeirri stefnu í tíð Valgerðar Sverrisdóttur og að ákvörðun núverandi ráðherra hafi verið mikilvægt skref í rétta átt.

Samtökin benda hins vegar á að betur megi gera ef Íslendingar vilji stuðla að friðsælli og öruggari veröld. Til að mynda ættu Íslendingar frekar að starfa á vettvangi friðargæslusveita Sameinuðu þjóðanna heldur en að taka þátt í verkefnum hernaðarbandalags Nató.

Samtök hernaðarandstæðinga hvetja Icelandair og önnur flugfélög til þess að setja sér siðareglur sem kæmi í veg fyrir vopnaflutning sem þann sem Icelandair Cargo flutti til Georgíu. Í þeim siðareglum ætti allri aðild að hernaði að vera hafnað.

Talsmaður flugfélagsins varði vopnaflutninginn með þeim orðum að það hafi skipt máli að byssur og skotfæri hafi ekki verið í sömu flugvél. Samtök hernaðarandstæðinga telja þennan málatilbúnað dæma sig sjálfan. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu samtakanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×