Silfurvélin á leiðinni með landsliðið 27. ágúst 2008 10:25 Flugfreyjur Icelandair munu skarta landsliðsbúningnum í tilefni dagsins. MYND/Vilhelm
Silfurvélin svokallaða er nú á leið til landsins með landsliðið íslands í handbolta innanborðs. Áhöfnin um borð í vélinni sem flytur handboltahetjurnar okkar til landsins síðar í dag er ekki í sínum hefðbundnu einkennisbúningum flugfreyja og flugþjóna, heldur í gömlum landsliðsbúningum. Flugstjórinn er Bjarni Frostason, en hann er fyrrverandi landsliðsmarkvörður. Liðið kemur frá Frankfurt og er áætluð lending í Keflavík klukkan hálf fjögur. „Strákarnir okkar" fá síðan silfurkort Vildarklúbbs Icelandair að gjöf frá flugfélaginu sem er á meðal helstu styrktaraðila landsliðsins. „Á leiðinni til Reykjavíkur verður mynduð heiðursfylking yfir Straumsvíkinni. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar og DC-3 vél Þristavinafélagsins, Páll Sveinsson, munu fylkja sér um Boeing 757 þotuna og fylgja strákunum loka mínúturnar inn til lendingar. Flogið verður yfir höfuðborgarsvæðið," segir í tilkynningu frá Icelandair. „Við Flugskýli 1 á Reykjavíkurflugvelli, Hótel Loftleiða megin, verður tekið á móti landsliðinu og fylgdarliði. Afmarkað svæði verður fyrir nánustu aðstandendur og fjölmiðla. Unnið verður eftir skipulagi sem hefur verið á flugdögum á Reykjavíkurflugvelli. Svæði fyrir áhorfendur verður á flugstæðinu fyrir norðan flugskýli 1, vestan megin við Hótel Loftleiðir, fyrir innan flugvallagirðingu. Að gefnu tilefni er tekið fram að ekki er gert ráð fyrir því að almenningur blandist landsliðsmönnum og fjölskyldum þeirra á flugvellinum," segir einnig í tilkynningunni. Birkir Hólm Guðnason framkvæmdastjóri Icelandair vill hvetja Íslendinga til þess að fjölmenna á þjóðhátíðina í Miðborginni í dag. „Ég vil hvetja fólk til þess að mæta á skipulögð hátíðarhöld við Skólavörðustíg og Arnarhól. Fólk mun geta fylgst með hópfluginu og lendingunni víða af höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem hyggjast koma niður að Reykjavíkurflugvelli skulu þó hafa í huga að umferðarþungi verður væntanlega mikill og tafir þá eftir því. Icelandair hefur stutt íslenska handboltalandsliðið í tæpa hálfa öld og við erum stolt af því að flytja strákana heim."
Mest lesið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Svandís í ritstjórastól Menning Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Tónlist Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Lífið Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Menning Dolly Parton látin Lífið „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Lífið Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Lífið Fleiri fréttir Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Fyrsta kvennalandsliðið í kotru býður á opna æfingu Svona voru afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Sjá meira