Innlent

Björgvin fundar með Darling í London

Alistair Darling
Alistair Darling

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra fundar með Alistair Darling fjármála- og bankamálaráðherra Bretlands í London í dag.

Í tilkynningu frá viðskiptaráðuneytinu segir að ráðherrarnir muni meðal annars ræða stöðuna á fjármálamörkuðum og framtíðarhorfur í fjármálastarfsemi. Fyrr um daginn heimsækir viðskiptaráðherra útibú íslensku bankanna í London og kynnir sér starfsemi þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×