Lífið

Við vitum að þetta verður ekkert auðvelt

ea skrifar
Örlygur Smári
Örlygur Smári

"Ég hef ágæta tilfinningu fyrir forkeppninni. Við reynum að gera það sem við getum til þess að kynna lagið. En við vitum að þetta verður ekkert auðvelt," segir Örlygur Smári lagahöfundur framlags Íslands til Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva This Is My Life þegar Visir spurði hann hvernig íslenski hópurinn hefði það.

"Annars gengur bara ljómandi vel hjá okkur. Við vorum ánægð með fyrstu æfinguna og bara mjög gaman og spennandi að vera hérna í Belgrad."

Charlotte Perelli frá Svíþjóð

 

"Margir hinna keppendanna eru að leggja gríðarlega mikið fé í kynningarvinnu. Til að mynda fór Charlotte Perelli frá Svíþjóð, dagana á milli æfinga, til landanna sem liggja að Serbíu til þess eins að kynna lagið. Við gerum samt okkar besta til þess að vekja á okkur athygli svo fólk vonandi kannist við lagið og flytjendurna þegar í forkeppnina og vonandi lokakeppnina verður komið," segir Örlygur þegar talið berst að hinum keppendunum í Eurovision í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.