Lífið

Queen Raquela til Bandaríkjanna

Ólafur Jóhannesson og Queen Raquela.
Ólafur Jóhannesson og Queen Raquela.

Kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, The Amazing Truth About Queen Raquela hefur fengið dreifingu í kvikmyndahús í Bandaríkjunum, en myndin hefur farið sigurför á kvikmyndahátíðum á árinu. Hún verður sýnd í fimm borgum í Bandaríkjunum, þ.á.m. New York og Los Angeles, og hefjast sýningar 26. september. Einnig er búið að selja myndina til Noregs, Danmerkur, Grikklands, Póllands og Ísraels.

"Þetta er mikil viðurkenning að fá dreifingu í Bandaríkjunum, því þetta er mjög erfiður markaður" segir Ólafur, leikstjóri myndarinnar. Ólafur segir þetta koma sér nokkuð á óvart því hann var ekki viss um að myndin færi vel í Bandaríkjamenn vegna viðfangsefnsins. Myndin segir frá Raquela, stelpustrák frá Filippseyjum sem dreymir um að flýja til Vesturlanda til að finna draumaprinsinn.

"Áætlun mín var að gera mynd sem hefði ekki þessi hefðbundnu efnistök fyrir "transgender" fólk. Ég vildi ekki gera mynd um líffræðileg örlög eins og kynskiptiaðgerð. Það virðist hafa tekist að gera mynd sem fjallar fyrst og fremst um manneskju í leit að ástinni á mjög erfiðum forsendum, því stelpustrákarnir í myndinni dreymir um að giftast gagnkynhneigðum manni," segir Ólafur.

Nýlega hlaut myndin sérstök verðlaun fyrir afreksverk í þágu samtíma kvikmyndagerðar á kvikmyndahátíðinni CinemaCity í Novi Sad í Serbíu. Áður hlaut henni í skaut tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni NewFest í New York, þar sem dómnefnd valdi hana bestu alþjóðlegu kvikmyndina og dómnefnd sjónvarpsstöðvarinnar Showtime kvað hana bestu mynd hátíðarinnar. Áður hampaði hún hin eftirsóttu Teddy-verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Berlín, sem er meðal virtustu kvikmyndahátíða í Evrópu.

Nýlega lauk sýningum á Queen Raquela á Los Angeles Film Fest og eru næstu viðkomustaðir m.a. Brasilía, Argentína, Litháen og Malasía.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.