Lífið

Stallone í Bollywood

MYND/Getty Images

Sylvester Stallone verður fyrsti þekkti Hollywoodleikarinn sem fer með aðalhlutverk í Bollywood mynd.

Önnur þekkt hasarmyndahetja, sjálfur Arnold Schwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu mun einnig koma við sögu í myndinni. Um er að ræða fyrstu stóru kvikmyndina sem indverskir kvikmyndagerðarmenn framleiða í Hollywood. Söguþráðurinn er á þá leið að indverskur áhættuleikari kemur til Hollywood og verður heimsfrægur þar. Hinsvegar gengur honum ekkert að finna sanna ást í kvikmyndaborgini.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.