Vilja hámarkslaun að upphæð 1 milljón króna 14. nóvember 2008 21:30 Hópurinn skorar meðal annars á alþingismenn að beita sér í launamálum.
Alþingi, ríkisstjórn og allir einkaaðilar í rekstri þurfa að sjá til þess að enginn hafi hærri laun en eina milljón króna á mánuði. Þetta segir í opnu bréfi nokkurra Dýrfirðinga til Alþingis, ríkisstjórnar og atvinnurekenda. „Þá beinum við þeim eindregnu tilmælum til ykkar að byrja ekki á skúringakonunum, færibandafólinu, öskuköllunum og þeim öðrum sem minnst mega sín í þjóðfélaginu þegar þið endurskoðið laun starfsfólks. Lækkið fyrst launin hjá þeim sem mest hafa.," segir ennfremur í bréfinu. Hópurinn segist telja að þarna sé um algjöra nauðsyn að ræða eins og málum hátti hjá þjóðinni í dag. Jafnframt er varað við of miklum erlendum lántökum, svo íslenska þjóðin fari ekki úr öskunni í eldinn. „Þetta er sundlaugahópurinn sem hittist á hverjum morgni, þetta er svona svipað og Veðurklúbburinn á Dalvík," segir Hallgrímur Sveinsson, einn þeirra sem stóð að bréfinu, aðspurður um það hverjir standi að baki því. Hann segir bréfið komi frá hópi fólks sem samanstandi af ýmsum borgurum í Dýrafirði. „Fólki finnst of langt gengið með þessi háu ofurlaun sem voru náttúrulega allt of há," segir Hallgrímur. Hann segir að fréttir af launum bankastjóra ríkisbankanna þriggja hafi síðan gert útslagið. Hallgrímur telur að þessi krafa um hámarkslaun sé sjálfsögð miðað við efnahagsástandið. Hallgrímur segir að hópurinn hafi ekki enn rætt málið við vestfirska þingmenn en þeir eigi að sjálfsögðu eftir að fá bréfið í hendurnar og svo sé bara að vonast til þess að þeir taki málið upp.
Mest lesið Bylgja Dís er látin Innlent Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Innlent Bera kennsl á mann fimmtíu árum eftir að hann lét sig hverfa Erlent Fjórar ungar vinkonur fórust í eldsvoða í Noregi Erlent Daður við drengi sem verður kynferðislegt og endar með hótun Innlent „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Innlent Fjórir af hverjum fimm vilja setja árlegt hámark á hælisleitendur Innlent Ósáttur við skattana og hefði viljað loka fjárlagagatinu Innlent Fundu villuráfandi ferðamenn nærri skálanum í Landmannalaugum Innlent Mál úgandsks stríðsherra gæti haft þýðingu fyrir Pútín og Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Óttast verðhækkanir sem bitni á konum og barnafjölskyldum Ósáttur við skattana og hefði viljað loka fjárlagagatinu Fjórir af hverjum fimm vilja setja árlegt hámark á hælisleitendur Ólík sýn á nýja fjárlagafrumvarpið Bylgja Dís er látin Fundu villuráfandi ferðamenn nærri skálanum í Landmannalaugum „Allir vilja alltaf meira“ Reikna með fimmtán milljarða halla á næsta ári Daður við drengi sem verður kynferðislegt og endar með hótun Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Bjargað af efri hæð eftir að eldur kom upp á jarðhæð í íbúðarhúsi Leitað að manni með öxi „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Syrgja fallið kornabarn og fyrsti þúsaldardýrlingurinn Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Kröftug mótmæli brjóti ekki gegn málfrelsi Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Jákvæð gagnvart nýrri atvinnustefnu Frábær og vel heppnuð Ljósanótt Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Skoða að rifta fríverslunarsamningi við Ísrael Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Fangageymslur fullar eftir erilsama nótt Aðgerðir vegna Gasa, málfrelsi á Íslandi og ný atvinnustefna Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Sjá meira