Tekjur Hafnarfjarðar minnka um milljarð kr. á næsta ári 14. nóvember 2008 11:25
Reiknað er með að tekjur Hafnarfjarðar muni minnka um milljarð kr. á næsta ári. Þetta kom fram í máli Gerðar Guðjónsdóttur fjármálastjóra Hafnarfjarðar á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun. Fjallað er um málið á vefsíðu sambandsins. Þar segir að stjórnendur Hafnarfjarðarbæjar velta við öllum steinum í rekstri sveitarfélagsins til bregðast við efnahagskreppunni og undirbúa fjárhagsáætlun ársins 2009. Gerður Guðjónsdóttir, fjármálastjóri Hafnarfjarðar, sagði á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í morgun að gert væri ráð fyrir að tekjur bæjarsjóðs minnkuðu um einn milljarð króna á næsta ári og gengið væri út frá 10% niðurskurði rekstrargjalda bæjarins á næsta ári. Bæjaryfirvöld útiloka ekki enn meiri niðurskurð og ætla að endurskoða framkvæmdaáætlun sína á vormánuðum. Gerður gerði að sínum orðum ummæli embættismanns í Garðabæ á að hafa sagt að viðbrögð sveitarfélaga á krepputímum væru að „skera burt alla fitu, froðu og lúxus í rekstrinum!" Vissulega væri unnt að finna „fitulög" í bæjarkerfinu í Hafnarfirði eftir góðærið undanfarið og nú yrði byrjað á að skera þau burt. Hún nefndi nokkra rekstrarþætti sem sparað yrði í hjá Hafnarfjarðarbæ. Þar á meðal væri ákveðið að draga úr aðkeyptri þjónustu, herða innkaupareglur, fækka innkaupakortum, takmarka búnaðarkaup, starfsmannafundir yrðu á dagvinnutíma en ekki á yfirvinnukaupi, reynt yrði að draga úr yfirvinnu og endurskoða fasta samninga, lækka styrki og fara yfir þjónustu og afgreiðslutíma. Gerður Guðjónsdóttir segir að rekstur Hafnarfjarðarbæjar hingað til í ár, fyrir fjármagnsliði, hafi verið í samræmi við áætlun: „Fjármagnsliðirnir eru hins vegar úr takti við allt eins og allir vita." Þá kom fram í máli hennar að dregið hefði úr og hægt á framkvæmdum í bænum, framboð á fjármagni til framkvæmda sé lítið sem ekki neitt. Þá hafi tekjur vegna gatnagerðar og byggingarréttar ekki skilað sér og bærinn hafi þurft að endurgreiða gjöld fyrir lóðir sem eigendur hafi látið frá sér fara. Greiðsluflæðið hjá bænum sé því þungt.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Sjá meira