Greiðslubyrði af verðtryggðum lánum lækkuð með vísitölu 14. nóvember 2008 16:25
Ríkisstjórnin mun leggja fram sérstakt frumvarp til þess að létta greiðslubyrði einstaklinga með verðtryggð lán ásamt því að endurskoða lög um dráttarvexti. Þá koma Bretar ekki hingað til loftrýmiseftirlits í desember. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra efndu til í dag. Þar var farið yfir margháttaðar aðgerðir sem snúa að heimilunum í landinu í núverandi kreppu. Þannig verður lagt fram frumvarp um að létta greiðslubyrði einstaklinga með verðtryggð lán með sérstakri greiðslujöfnunarvísitölu. Þetta getur lækkað greiðslubyrði um tíu prósent nú og 20 prósent eftir um ár frá því sem ella hefði orðið. Sagði Geir þetta mikilvæga aðgerð og skylda þeirri að koma fólki með gjaldeyrislán til aðstoðar. Með þessu frumvarpi væri verið að fresta hluta af verðbótum þar til síðar á greiðslutímabili. Dráttarvextir lækkaðir Þá sagði forsætisráðherra að því hefði verið beint til Íbúðalánasjóðs að koma til móts við þá sem ættu í erfiðleikum með ýmsum aðgerðum, þar á meðal lengri greiðslutíma lána og að fólk gæti leigt húsnæði sitt ef það missti það til sjóðsins. Enn fremur stæði til að endurskoða lög um dráttarvexti þannig að þeir lækkuðu, að minnsta kosti tímabundið, og jafnframt að setja þak á innheimtukostnað. Barnabætur greiddar út mánaðarlega Þá kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að til stæði að fella úr gildi heimild tímabundið um að skuldajafna barnabótum á móti opinberum gjöldum sem hefðu lent í vanskilum. Þá væri gert ráð fyrir að barnabætur yrðu greiddar út mánaðarlega í stað þess að vera á þriggja mánaða fresti og enn fremur að hægt yrði að semja um skattaskuldir. Þá yrðu innheimtuaðgerðir mildaðar hjá stofnunum og takmarkað það hlutfall launa sem nota mætti til skuldajöfnunar, en það hlutfall væri nú 75 prósent af launum. Þá sagði hún að frumvarp væri nú til umfjöllunar hjá stjórnarflokkunum þar sem heimilt væri að endurgreiða hluta vörugjalda og virðisaukaskatts af notuðum ökutækjum. Fólk gæti þannig losað sig við notaða bíla ef frumvarpið yrði að lögum. Bretar koma ekki til loftrýmiseftirlitsins Ingibjörg sagði þessar tillögur unnar á vegum vinnuhóps á vegum ríkisstjórnarinnar sem væri enn að störfum og næst myndi hann koma með aðgerðir til hjálpar fyrirtækjum í landinu. Þá bætti hún við að frumvarp um sérstaka rannsóknarnefnd á vegum Alþingis yrði lagt fram í næstu viku en það væri í samstarfi flokkanna. Enn fremur kom fram að allar þessar aðgerðir yrðu kynntar í blöðum morgundagsins. Þá kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að Bretar myndu ekki koma hingað til loftrýmiseftirlits í desember eins og til stóð. Þetta hefði verið ákveðið í ljósi sameiginlegs mats Atlantshafsbandalagsins.
Mest lesið Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Innlent Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Innlent Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Innlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Erlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Erlent Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Erlent Fleiri fréttir Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Sjá meira