Innlent

Hræðilega erfið mál

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jórunn Frímannsdóttir
Jórunn Frímannsdóttir
„Barnavernd Reykjavíkur er ekki alltaf öfundsverð af sínu hlutverki," segir Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, um gagnýni Ingibjargar Benediktsdóttur á störf barnaverndanefndar.

Ingibjörg gagnrýnir barnaverndanefnd harðlega í Morgunblaðsgrein í morgun, en 26 ára gömul systurdóttir hennar lést af völdum eiturlyfjaneyslu í upphafi mánaðarins. Ingibjörg segir meðal annars að barnaverndanefnd hafi ekki tryggt öryggi ungra sona konunnar í veikindum hennar.

Þá gagnrýnir Ingibjörg að forræðið yfir drengjunum skuli færast sjálfkrafa til feðra drengjanna. Jórunn segir að barnaverndanefnd starfi samkvæmt barnaverndalögum. Hún hafi fulla trú á því að þar sé unnið mjög faglegt starf, börnum til heilla. Hún segir að samkvæmt sínum skilningi á lögunum færist forsjárrétturinn sjálfkrafa til feðra þegar móðir falli frá. „Þetta eru hræðilega erfið mál og oft vildi maður óska að það væri meiri sveigjanleiki, en svona eru lögin og þannig er jafnræðis gætt," segir Jórunn.

Jórunn segist ekki efast um heilindi og ágæti þess fólks sem starfi hjá barnavernd. Það sé ekki alltaf öfundssvert af sínum störfum og þurfi oft að taka erfiðar ákvarðanir. Jórunn segist treysta framkvæmdastjóra barnaverndanefndar til að skoða þetta mál og fara ofan í forsendur þeirra athugasemda sem koma fram í grein Ingibjargar. 

Tengdar fréttir

Harma mjög að fjölskyldan skuli upplifa þetta

„Ég harma það mjög að fjöldskyldan skuli upplifa þetta. Það verður farið í að skoða þetta með starfsmönnum sem komu að málinu og í framhaldinu verður haft samband við fjölskylduna," segir Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, um gagnrýni á hendur stofnuninni vegna móður tveggja drengja sem lést af völdum eiturlyfjaneyslu í upphafi mánaðarins.

Skortur á samvinnu í kerfinu

Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir allt í lausu lofti varðandi geðsjúka og aðstandendur þeirra, hvort sem um er að ræða foreldra eða börn. Afleiðingar þess séu oft skelfilegar. Sveinn segir þekkingarleysi á geðsjúkdómum mikið í þjóðfélaginu en að alvarlegast sé hve illa þeir aðilar sem sinna eigi þeim sem minna mega sín í þjóðfélaginu vinni saman.

Trúi ekki að hún hafi ætlað að svipta sig lífi

Helga Guðrún Hlynsdóttir, náin vinkona og nágranni hinnar ungu tveggja barna móður sem lést af völdum eiturlyfja í byrjun maí trúir því ekki að vinkona hennar hafi ætlað að svipta sig lífi. Hún segir stúlkuna hafa verið góða móður sem beið eftir því að fá drengina sína tvo heim til sín fyrir fullt og allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×