Innlent

Harma mjög að fjölskyldan skuli upplifa þetta

Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur.
Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur.

„Ég harma það mjög að fjöldskyldan skuli upplifa þetta. Það verður farið í að skoða þetta með starfsmönnum sem komu að málinu og í framhaldinu verður haft samband við fjölskylduna," segir Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, um gagnrýni á hendur stofnuninni vegna móður tveggja drengja sem lést af völdum eiturlyfjaneyslu í upphafi mánaðarins.

Ömmusystir drengjanna, Ingibjörg S. Benediktsdóttir, ritar grein um málið í Morgunblaðið í dag þar sem framganga Barnaverndar Reykjavíkur í málinu er harðlega gagnrýnd.

Fram kemur að móðirin hafi glímt við fíkniefni, læknadóp og geðhvarfasýki sem hafi í upphafi mánaðar dregið hanan til dauða. Ingibjörg segir móðurforeldra drengjanna, sem eru 6 og 10 ára, hafa bent Barnaverndarnefnd Reykjavíkur á að móðirin væri ófær um að annast drengina vegna fíknar sinnar og veikinda. Engu að síður hafi Barnaverndarnefnd heimilað að móðirin fengi þá í heimsókn. Allt væri í lagi hjá móðurinni.

Voru á vegum Barnaverndarnefndar

Amman og afinn búa úti á landi og keypti Barnaverndarnefnd flugmiða fyrir drengina suður í lok apríl. Voru þeir hjá móður sinni sem síðan sendi þá í pössun án samráðs við barnaverndarnefnd. Meðan þeir voru í pössun lést móðirin úr of stórum skammti lyfja og komu yngri sonurinn og faðir hans að henni látinni. Ingibjörg bendir á að drengirnir tveir hafi verið á vegum Barnaverndarnefndar í Reykjavík og starfsmaður nefndarinnar átti að koma í óundirbúnar heimsóknir til móðurinnar. Hann hafi hins vegar hringt tvisvar en í hvorugt skiptið hefði verið svarað.

Þá lýsir Ingibjörg íbúð móðurinnar þennan hátt: „Íbúð sem gerir sögusvið myndarinnar Trainspotting líkasta barnamynd í samanburði við þann hrylling sem blasti við okkur sem losuðum íbúðina. Við fundum hass, hvítt duft, álpappír, plastpoka, 100 kveikjara, brenndar skeiðar, skæri og hnífa. Við það eitt að lyfta upp sessunni á stofusófanum blöstu við ummerki um gífurlega eiturlyfjaneyslu. Enginn hefur verið í íbúðinni síðan frænka mín lést, þannig að allur þessi ósómi hefur verið til staðar þegar fulltrúi Barnaverndarnefndar Reykjavíkur heimsótti frænku mína og gaf grænt ljós á að hún fengi drengina í heimsókn. Ég bara spyr: Hvernig líta þau heimili út þar sem Barnaverndarnefnd Reykjavíkur telur að börnum sé EKKI hollt að búa?"

Hafa ekki takmarkalausar heimildir til að brjótast inn

Halldóra Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, segist ekki hafa fengið tækifæri í morgun til þess að fara yfir feril málsins en segir stofnunina taka gagnrýni fjölskyldunnar alvarlega. „Við eigum hins vegar eftir að fara yfir málið hér og munum hafa samband við fjölskylduna vegna málsins," Halldóra.

Aðspurð segir Halldóra að Barnavernd Reykjavíkur hafi nægan mannskap til þess að sinna eftirliti en það sé spurning hversu langt megi ganga til þess að kanna aðstæður foreldra. „Foreldrar samþykkja oft eftirlit og hleypa okkur inn en við höfum hins vegar ekki takmarkalausar heimildi til þess að brjótast inn til fólks þegar grunur leikur á að ekki sé allt með felldu. Við þurfum að meta í hverju tilviki hvernig skuli bregðast við," segir Halldóra. Hún bendir á að Barnaverndarnefnd eða dómstólar þurfi að úrskurða um að fara megi inn í íbúð og það sé þá gert með lögreglu. Aðspurð koma slík tilvik upp á hverju ári hjá Barnaverndarnefnd Reykjavíkur.

Forsjá flyst til föður samkvæmt lögum

Í grein Ingibjargar kemur einnig fram gagnrýni á forsjármál drengjanna, en forsjá þeirra fluttist sjálfkrafa til feðra drengjanna við dauða móðurinnar. Fjölskylda hennar bendir á að þeir hafi líka glímt við vandamál.

Halldóra segir að lög kveði á um að feður fái forsjá barna við andlát móður og Barnaverndarnefnd geti ekki brugðist við nema vísbendingar komi fram um að ekki sé allt með felldu. „Þá er það skoðað eins og hvert annað barnaverndarmál," segir Halldóra. Hún segir sum þessara mála mjög erfið enda oft mikil reiði sem beinist að feðrum sem kannski hafi verið í óreglu.

Mikil fjölgun hefur orðið á málum þar sem foreldrar hafa látist frá börnum sínum vegna fíkniefnaneyslu. Halldóra segir að á síðust tólf mánuðum hafi Barnaverndarnefnd haft afskipti af á annan tug mála þar sem grunur leikur á að foreldrar hafi látist frá börnum vegna veikinda tengdum fíkniefnum. Á undanförnum árum hafi tilvikin hins vegar verið 1-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×