Bubbi útskýrir ummælin í Mogganum - Fær pillur frá fylgdarliði Bjarkar 20. júlí 2008 13:01 Bubbi Morthens
Fylgdarlið Bjarkar Guðmundsdóttur var ekki lengi að svara Bubba Morthens vegna ummæla hans í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Í viðtalinu sagði Bubbi að það væru mikilvægari baráttumál í samfélaginu en náttúrumál. Nefndi Bubbi fátækt sérstaklega í því samhengi. Í sama viðtali sagðist Bubbi hafa tapað miklum fjármunum á hlutabréfaviðskiptum undanfarna mánuði. "Kannski hefði Björk átt að tileinka Bubba tónleikana," er skrifað í nýrri bloggfærslu á blogginu hennar Bjarkar en færslan er svar við fyrrnefndum ummælum Bubba. Og það er meira skotið á Bubba. "Í stað þess að gagnrýna Björk fyrir að berjast fyrir röngum málstað ætti Bubbi að gera eitthvað í málunum sjálfur," segir í lok færslunnar á blogginu hennar Bjarkar. Líklega er það ekki Björk sjálf sem skýtur svona á Bubba því á blogginu segir að það sé aðallega föruneyti hennar á tónleikaferð um heiminn sem skrifi færslur. Jónas Sen er sagður hvað duglegastur við að uppfæra síðuna. Bubbi sjálfur birti í gær yfirlýsingu á heimsíðu sinni þar sem hann útskýrir ummæli sín í viðtalinu en þau vöktu mikil viðbrögð. Þar skrifar Bubbi: Það er flott og gott mál að geta tengt sig andlega við þúfur og steina og fundið fyrir ást til náttúrunnar... Það er meiri þörf fyrir því að vekja athygli á kjörum fólks á íslandi en náttúrunni... Ég var ekki að "dissa" Björk sem ég ber mikla virðingu fyrir og það sama má segja um Sigurrós. Ég var að leggja áherslu á að þörfin er mikil og að Álversframkvæmdir eru ekki það versta í íslensku þjóðlífi. Bloggið hjá Björk má lesa hérHeimasíða Bubba er hér
Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Vetrarparadísin höfðar til íslenskra bókakaupenda Menning Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira