Lífið

Stór vika hjá Bubba

Sólmundur Hólm skrifar
Þau Bubbi og Hrafnhildur ganga í hnapphelduna þann 7. júní. Daginn áður gefur Bubbi út nýja plötu.
Þau Bubbi og Hrafnhildur ganga í hnapphelduna þann 7. júní. Daginn áður gefur Bubbi út nýja plötu. MYND/Rósa
Bubbi Morthens gefur út plötu og gengur í hjónaband í næstu viku. Eitt lagið á plötunni er samið til fanga á Litla-Hrauni.

„Nei, þessir atburðir skyggja ekki hvor á annan,“ segir Bubbi Morthens sem á fyrir höndum viðburðaríka viku. Á föstudaginn kemur út plata hans Fjórir naglar en það er fyrsta plata hans með nýju efni síðan árið 2005.

Að kvöldi föstudagsins verða haldnir útgáfutónleikar í Borgarleikhúsinu. Daginn eftir eru ekki síður mikilvæg, og í raun mun mikilvægari, tímamót í lífi Bubba. Þá gengur hann í heilagt hjónaband með unnustu sinni Hrafnhildi Hafsteinsdóttur.

„Tónleikar eru bara tónleikar. Ég hef haldið marga tónleika um ævina. En ég get ekki beðið eftir að sjá Hrafnhildi í skrúðanum,“ segir Bubbi titrandi af tilhlökkun. Brúðkaupið fer fram á Reynivöllum í Kjós og er það séra Pálmi Matthíasson sem gefur saman og má búast við því að brúðkaupið og veislan verði með glæsilegasta móti.

Aftur að plötunni. Bubbi segist spenntur fyrir útgáfunni. „Það er alltaf gaman að gefa út plötu, sérstaklega ef þetta er jafn góð plata og þessi,“ segir hann. Plötuna vann hann með Pétri Ben og segir Bubbi hann hafa haft gífurlega mikið með sándið að segja. „Ég hef alltaf verið óhræddur við að vinna með öðrum og leyft öðrum að koma sínu að. Þó það geti verið erfitt,“ segir hann og hlær.

Platan, sem er hin vandaðasta, hefur að geyma þrettán lög og fer Bubbi um víðan völl í textasmíðum. Eitt lagið, Þegar tíminn er liðinn, er samið til fanganna á Litla-Hrauni sem Bubbi hefur spilað fyrir árum saman. „Ég fékk hugmyndina að laginu eftir að ég var að spila fyrir strákana á Litla-Hrauni. Þar söng ég blús þar sem ég improviseraði. Svo þegar ég minntist á Litla-Hraun þá öskruðu þeir og blístruðu,“ segir Bubbi sem í kjölfarið ákvað að semja lag þeim til heiðurs.

„Ég á svo mikið af vinum sem hafa stigið af beinu brautinni, og þeir áttu inni hjá mér lag.“ Lagið fjallar um fangelsisdvölina og þá krísu sem fangar lenda í þegar þeir losna úr fangelsi eftir langa dvöl. Hvað tekur við og „í hvaða helvítis átt gengur maður þegar tíminn hér er liðinn“ eins og segir í laginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.