Meirihlutasamstarf í Bolungarvík rætt seinna í dag Breki Logason skrifar 23. apríl 2008 10:18 Elías Jónatansson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík.
Elías Jónatansson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Bolungarvík segist eiga í þreifingum við A-listann um hugsanlegt meirihlutasamstarf í bænum. Meirihlutasamstarfið í bæjarstjórninni sprakk í gær. Annar viðræðufundur er á dagskrá í dag. Í Bolungarvík hefur verið meirihlutasamtarf K-lista og A-lista, sem er klofningsframboð úr Sjálfstæðisflokki, en það samstarf sprakk í gær. Anna Guðrún Edvardsdóttir oddviti A-lista sleit samstarfinu og hefur sagt ástæðuna vera of mikil umsvif oddvita K-listans í bænum. Strax í gærkvöldi hitti Anna Guðrún síðan Elías á fundi og var farið yfir stöðuna sem upp er komin. „Við erum nú bara að taka stöðuna og erum aðallega í gagnaöflun. Það er verið að vinna ársreikning fyrir bæjarfélagið sem er nánast tilbúinn og erum því að taka púlsinn á því. Þetta gerist hratt og því þótti okkur eðlilegt að taka stöðuna á fjármálunum áður en lengra er haldið," segir Elías sem er í lykilstöðu í bænum eftir stjórnarslitin. Elías vill þó lítið gefa upp um skoðun sína á ástæðum stjórnarslitanna. „Eins og ég hef sagt við þær stöllur báðar þá vil ég ekki blanda mér inn í þeirra mál," segir Elías sem ætlar að hitta Önnu Guðrúnu á fundi aftur í dag. Hann segir ekkert hafa verið rætt hvort Grímur Atlason bæjarstjóri muni koma til með að sitja áfram við hugsanleg stjórnarskipti. „Það hafa engar ákvarðanir verið teknar nema að við ætlum að hittast aftur í dag, þetta gerist ekkert hraðar þar sem einungis er hægt að gera eitt í einu."
Mest lesið Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Erlent Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Innlent Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Erlent Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Erlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Innlent Fleiri fréttir Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í rafhlaupahjóli innandyra Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Feli í sér óásættanlega hættu og gefi tilefni til aflífunar Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Sjá meira