Pétur Blöndal vill að ríkið taki atvinnulífið sér til fyrirmyndar 4. desember 2008 11:33 Pétur Blöndal.
Pétur Blöndal þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ef hið opinbera neyðist til að lækka launakostnað sinn þá ætti heldur að grípa til þess að lækka vinnuhlutfall starfsmanna í stað þess að segja sumum þeirra upp að fullu. Þetta kom fram í fyrirspurn sem hann beindi til fjármálaráðherra þar sem hann spurði hvernig standi á því að Ríkisútvarpið skuli grípa til þess að segja upp fólki endanlega í stað þess að minnka vinnuhlutfall starfsmanna líkt og gert hafi verið í atvinnulífinu. Pétur benti á að þegar Finnar lentu í sinni kreppu árið 1990 hafi atvinnuleysi aukist mikið í landinu og að það hafi lítið dregið úr því til þessa dags. Þess vegna hafa aðilar vinnumarkaðar og Alþingi breytt lögum um atvinnuleysistryggingasjóð sem gera það að verkum að fólki er frekar sagt upp að hluta en að fullu. Í ljósi þess að RÚV sagði upp starfsmönnum á dögunum að fullu vildi Pétur vita hvort þetta væri almennt stefna hins opinbera. Árni svaraði Pétri og sagðist ekki hafa haft neina aðkomu að uppsögnum RÚV. Hann sagði almennt að það myndi fara eftir hverju ráðuneyti hvað verði gert og umfangið muni fara eftir því hvernig fjárlögin verða. Hann sagði þó að engar sérstakar línur í þessum efnum hefðu verið lagðar fyrir ríkisstofnanir. Pétur fór aftur í pontu og skoraði þá á fjármálaráðherra að taka frekar upp hluta-atvinnuleysi frekar en fullt. „Ég skora á hæstvirtan ráðherra að vinna þannig að lausn þessara mála þannig að fólki sé frekar sagt upp að einum fjórða heldur en að fjórðungi fólks sé sagt upp að fullu," sagði Pétur. Að sögn Péturs sýna rannsóknir að stór hluti þeirra sem lenda í viðvarandi atvinnuleysi fara aldrei aftur út á vinnumarkaðinn.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira