Mótmæla Goldfinger-úrskurði með því að hreinsa til í ráðuneyti 23. maí 2008 10:58
Nokkar konur munu í hádeginu hreinsa dómsmálaráðuneytið á táknrænan hátt til þess að mótmæla úrskurði ráðuneytins varðandi leyfi Goldfinger til nektardans. Í tilkynningu frá þeim segir að full þörf sé að lofta rækilega út og þrífa út gamaldags viðhorf sem komi í veg fyrir að ráðuneytið sinni skyldum sínum og berjist gegn mansali. „Kornið sem fyllti mælinn var úrskurður dómsmálaráðuneytisins í fyrradag þar sem Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins var gert að endurskoða umsögn sína um nektardans á Goldfinger. Lögreglustjórinn hafði áður sent neikvæða umsögn sem hefði skv. núgildandi reglum átt að verða til þess að leyfi til nektardans yrði ekki veitt. Staðurinn hefur þó starfað skv. bráðabirgðaleyfi á meðan dómsmálaráðuneytið vann úr áfrýjun Brynjars Níelssonar fyrir hönd staðarins. Síðustu ár hafa sérfræðingar keppst við að benda á tengsl milli vændis, nektardans, kláms og mansals. Kvennaathvarfið, Stígamót, Alþjóðahúsið, lögreglan og fleiri hafa staðfest að mansal þrífst hér á landi og rannsóknir hafa sýnt fram á að vændi þrífst á nektardansstöðum - það eru ógreinanleg mörk á milli vændis og mansals. Þrátt fyrir þetta er umsögn lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins talin of huglæg samkvæmt dómsmálaráðuneytinu og hagsmunir Ásgeirs Davíðssonar teknir fram fyrir baráttuna gegn vændi og mansali, enn einu sinni," segir í tilkynningu kvennanna.Samningar undirritaðir en ekki farið eftir þeimÞær segja enn fremur að Ísland hafi undirritað alþjóðasamninga gegn mansali, þar á meðal samning Sameinuðu þjóðanna kenndan við Palermo og samning Evrópuráðsins um aðgerðir gegn mansali. Þegar heim sé komið skortir svo pólitískan vilja til að fara eftir samningunum.„Enn á ný er verið að gera breytingar á hegningarlögunum án þess að gengið sé alla leið og þeim úrræðum sem vitað er að bíta á mansali sé beitt. Því er eðlilegt að spurt sé Af hverju: · er ekki búið að leggja bann við kaupum á vændi?· er ekki búið að setja siðareglur fyrir opinbera starfsmenn sem banna kaup á kynlífsþjónustu?· er ekki farið að lögum sem banna sölu og dreifingu á klámi?· eru veittar undanþágur við lög sem banna nektarsýningar á veitingastöðum?· er ekki búið að samþykkja lög um fórnarlambavernd þeirra sem verða fyrir mansali?· er ekki búið að samþykkja brottvísun og heimsóknarbann vegna ofbeldis inni á heimilum?· er ekki löngu komin aðgerðaráætlun gegn mansali?· eru rannsóknir um áhrif og afleiðingar klámvæðingarinnar alltaf dregnar í efa?· hafa stjórnvöld ekki viljað fullgilda alþjóðasáttmála gegn mansali?· eru ekki veittar undanþágur á atvinnu- og dvalaleyfi ef einstaklingur hefur orðið fyrir ofbeldi?· verja sumir karlmenn aðgang sinn að líkömum kvenna með þessum krafti? Hverra hagsmuna er verið að gæta? Það er greinilega eitthvað rotið í dómsmálaráðuneytinu og full þörf á að hreinsa út," spyrja konurnar.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira