Ísland mótmælir samþykkt um stjórn makrílveiða 16. nóvember 2008 15:41
Föstudaginn 14. nóvember lauk í London 27. ársfundi Norðaustur-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar, NEAFC. Á fundinum var m.a. fjallað um stjórn veiða á kolmunna, úthafskarfa, norsk-íslenskri síld, og makríl fyrir árið 2009 auk verndunar viðkvæmra hafsvæða. Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu kemur fram að ekki hafi tekist samningar um veiðar á úthafskarfa og að samþykkt hafi verið tillaga um stjórn makrílveiða, sem Íslendingar mótmæltu. Þá var heildaraflamark ákveðið í norsk-íslenska síldarstofninum og komu 238 þúsund tonn í hlut Íslendinga fyrir árið 2009. „Á árinu 2005 náðist strandríkjasamkomulag um stjórn kolmunnaveiða, sem batt enda á stjórnlausar ofveiðar fyrri ára. Ákveðið var að á árinu 2009 verði dregið verulega úr sókn í kolmunna og heimilað að veiða alls 590 þúsund tonn, þar sem hlutur Íslands er tæp 96 þúsund tonn. Er þetta í samræmi við samþykkt fundar strandríkjanna sem undirrituð var 12. nóvember. Þetta er því þriðja árið í röð sem dregið er verulega úr kolmunnaveiðum til að vinna að því markmiði að veiðarnar verði sjálfbærar," segir í tilkynningunni. „Ekki náðist niðurstaða á fundinum um veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg og var frekari viðræðum frestað fram í febrúar og eru veiðar óheimilar til 1. apríl. Samkomulag náðist um að leyfa veiðar á 10.500 tonnum af úthafskarfa í síldarsmugunni á tímabilinu 15. ágúst til 15. nóvember 2009 og meðafli á karfa fari ekki yfir 1% við aðrar veiðar. Líkt og verið hefur undanfarin 2 ár verður veiðiheimildum ekki skipt á milli aðila og verða veiðarnar stöðvaðar þegar heildaraflamarkinu verður náð," segir ennfremur. Þá segir að á grunni samkomulags strandríkja um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum, sem stendur mjög vel um þessar mundir, hafi verið ákveðið að heildaraflamark fyrir árið 2009 verði 1.643.000 tonn. Í hlut Íslands á árinu 2009 koma rúm 238 þúsund tonn. Þá var samþykkt tillaga um stjórn makrílveiða, sem Ísland mótmælti. „Byggjast mótmæli Íslands, líkt og áður, á því að í samkomulaginu er ekki tekið tillit til stöðu Íslands sem strandríkis sem Íslendingar telja óviðunandi, m.a. í ljósi þess að yfir 110 þúsund tonn af makríl hafa veiðst innan íslenskrar lögsögu það sem af er þessu ári. Því er ljóst samkvæmt hafréttasamningi Sameinuðu þjóðanna að Ísland sé strandríki. Ísland áréttaði þó að þróun mála væri á réttri leið þar sem Íslandi var í ár í fyrsta sinn boðið að taka þátt í fundum hinna strandríkjanna." Samkomulag varð um áframhaldandi lokanir á svæðum þar sem talið er að finnist viðkvæm vistkerfi, svo sem kórallar. Þetta er liður í starfi NEAFC að verndun viðkvæmra hafsvæða sem aukin áhersla hefur verið lögð á undanfarin ár. Þá var ákveðið að formenn sendinefnda kæmu saman í mars á næsta ári til að ræða frekari útfærslur við verndun viðkvæmra hafsvæða til framtíðar. „Á aukaaðalfundi NEAFC, sem fram fór í júlí sl., náðist samkomulag um stjórnunarráðstafanir um botnfiskveiðar. Stjórnunarráðstöfunum er ætlað að styðja við frekari verndun viðkvæmra vistkerfa á úthafinu á samningssvæði NEAFC og munu þær taka þær gildi 1. janúar 2009," segir einngi og því bætt við að á fundinum hafi verið settar frekari reglur til samræmis við ofangreindar stjórnunarráðstafanir. „Þar sem botnfiskveiðar hafa ekki áður átt sér stað er einungis heimilt að stunda tilraunaveiðar sem fylgja ákveðnum skilyrðum s.s. um eftirlit og töku sýna. Á grunni þeirra upplýsinga sem fást við slíkar veiðar, á svæðum þar sem botnfiskveiðar hafa ekki verið stundaðar áður, er ákveðið hvort botnfiskveiðar á nýju veiðisvæði verða leyfðar eða bannaðar. Á meðan á tilraunaveiðum stendur skulu fánaríki beita skyndilokun ef skip þeirra rekast á viðkvæmt vistkerfi." Ákveðið var að aðildarríkin taki á sig þá skyldu að skip þeirra hætti veiðum tafarlaust komi í ljós að mikið magn af t.d. kóral komi í botnveiðarfæri á svæðum sem hafa verið kortlögð. „Samþykktir voru ákveðnir þröskuldar (t.d. magn af kóral og svömpum) sem viðmið um hvenær beri að stöðva veiðar. Þannig hefur NEAFC komið að fullu til móts við ályktun allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (UNGA 61/105) sem tekur til verndunar viðkvæmra vistkerfa hafsins á úthafinu." „Hinn mjög svo ánægjulegi árangur í baráttunni gegn ólöglegum veiðum sem orðið hefur á undanförnum árum var jafnframt til umræðu. Annað árið í röð voru engin sjóræningjaskip að karfaveiðum á Reykjaneshrygg. Ljóst er að aðgerðir NEAFC undanfarin ár eru lykillinn að þessum árangri," segir að lokum í tilkynningunni. Formaður íslensku sendinefndarinnar var Steinar Ingi Matthíasson skrifstofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Auk fulltrúa sjávararútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins voru í sendinefnd Íslands á fundinum fulltrúar Hafrannsóknastofnunarinnar, Fiskistofu, og Landssambands íslenskra útvegsmanna. Stefán Ásmundsson skrifstofustjóri í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu er forseti NEAFC og var fundarstjóri.
Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Sjá meira