Innlent

Fjöldi hjólhýsa hefur nærri fjórfaldast á fimm árum

Fjöldi hjólhýsa hér á landi hefur nærri fjórfaldast og fjöldi húsbíla hefur rúmlega tvöfaldast á síðustu fimm ár hér á landi. Þetta kemur fram í svari Kristjáns L. Möller samgönguráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri grænna.

Alls eru næri 16.500 hjólhýsi, tjaldvagnar, húsbílar og fellihýsi í umferð hér á landi. Þar af eru hjólhýsin nærri 2800 en voru rúmlega 700 árið 2003. Enn fremur eru hér rúmlega 10.400 tjaldvagnar og hefur fjölgað um þriðjung á þessum tíma. Húsbílarnir eru um 2.300 en voru 900 árið 2003.

Álfheiður spurði einnig hversu mörg slík tæki hefðu tengst umferðarslysum á síðustu fimm árum og reyndust þau 135. Þar af var eitt banaslys og tvö slys með alvarlegum afleiðingum.

Þá spurði Álfheiður hvort ráðherra teldi þörf á að herða eftirlit með þessum farartækjum og gera þau skoðunarskyld. Í svari ráðherra segir að kerrur undir 750 kílóum séu hvorki skráningar- né skoðunarskyldar. Hins vegar séu tengitæki, svo sem hjólhýsi, tjaldvagnar og fellihýsi, skráningarskyld en ekki skoðunarskyld.

Í ráðuneytinu sé nú unnið að mótun reglna um skráningu og skoðun eftirvagna og tengitækja bifreiða og verður í þeirri vinnu hugað að því að gera þau sem eru yfir 750 kg að þyngd skoðunarskyld.

Nýleg ökutæki skoðuð sjaldnar

Þá segir ráðherra reglur um skoðun ökutækja enn fremur í athugun með tilliti til þess hversu oft skuli færa ökutæki til skoðunar. Hér á landi sé gengið lengra hvað þetta varðar en í nágrannalöndunum. Í þessu sambandi hefur verið rætt um að skoða nýleg ökutæki sjaldnar eða fyrst eftir fjögur ár en síðan á tveggja ára fresti og leggja meiri áherslu á skoðun þeirra sem eldri eru. Hið sama mundi þá gilda um skoðun á hjól- og fellihýsum, tjaldvögnum og kerrum yfir 750 kg.

Það fylgir í svarinu að árið 2002 hafi 10.900 dráttarvélar verði skráðar í landinu en þær voru 11.400 í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×