Tíundi hver undir lágtekjumörkum árið 2005 11. apríl 2008 09:16
Einn af hverjum tíu sem bjuggu á einkaheimilum á árunum 2003-2005 var fyrir neðan lágtekjumörk eins og þau eru skilgreind í lífskjararannsókn Evrópusambandsins. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar sem tók þátt í rannsókninni. Lágtekjumörkin voru rúmlega 111 þúsund krónur í ráðstöfunartekjur á mánuði fyrir einstakling sem bjó einn árið 2005 en tæplega 234 þúsund krónur fyrir tvo fullorðna með tvö börn. Hlutfall þeirra sem voru undir lágtekjumörkum árið 2005 var hæst hjá konum í aldurshópnum 16-24 ára, rúm 14 prósent en lægst hjá fólki í aldurshópnum 50-64 ára, rétt yfir 4 prósent. Hlutfallslega fleiri þeirra sem bjuggu einir eða einir með börn voru undir lágtekjumörkum en þeir sem bjuggu á annars konar heimilum. Það sama gildir um þá sem bjuggu í leiguhúsnæði samanborið við þá sem bjuggu í eigin húsnæði. Ísland ein þriggja þjóða með lægsta lágtekjuhlutfallið Hagstofan segir að þegar þau sá fimmtungur landsmanna sem hafði hæstar ráðstöfunartekjur hefði verið borinn saman við þann fimmtung sem hafði lægstar ráðstöfunartekjur árið 2005 kemur í ljós að tekjuhæsti hópurinn var með nærri fjórum sinnum hærri tekjur en sá tekjulægsti. Gini-stuðullinn, sem sýnir dreifingu ráðstöfunartekna meðal allra landsmanna sem búa á einkaheimilum, var 26 árið 2005. Stuðullinn væri 100 ef sami maðurinn væri með allar tekjurnar en 0 ef allir hefðu jafnar tekjur.Af 30 Evrópuþjóðum árið 2005 var Ísland ein þriggja þjóða sem var með lægsta lágtekjuhlutfallið. Þá voru sex Evrópuþjóðir með lægri Gini-stuðul en Íslendingar, tvær jafnar og 21 með hærri stuðul.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira