Fundar með formanni og borgarfulltrúa Framsóknar vegna ummæla 11. apríl 2008 16:08 MYND/Anton
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri mun funda með bæði borgarfulltrúa og formanni Framsóknarflokksins eftir helgi til þess að reyna að setja niður deilur vegna orða borgarstjóra um flokkinn í fjölmiðlum. Deilur hafa staðið á milli Ólafs og Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, vegna orða sem borgarstjóri lét falla um Framsóknarflokkinn og meinta þjónkun hans við verktaka og auðmenn í borginni. Ummælin féllu í kvöldfréttum Sjónvarps í tengslum við umfjöllun um vanda miðborgarinnar. Orðrétt sagði borgarstjóri: „Það hafa orðið þau umskipti í borginni að í fyrsta skipti í langan tíma er sá flokkur sem lengst hefur gengið í þjónustu við verktaka og auðmenn, Framsóknarflokkurinn ekki í meirihluta í Reykjavík. Og ég held að þess muni sjást stað í skipulagsmálunum og uppbyggingunni þar að við erum að gæta hagsmuna borgarbúa en ekki einhverra tiltekinna sérhagsmunahópa eða flokksmanna, eða verktaka eða annara sem (hafa) mikla umsýslu og fé undir höndum."Óskar spurði borgarstjóra út í málið á borgarstjórnarfundi og lét borgarstjóri þau orð falla að ummælin beindust ekki að Óskari sjálfum heldur Framsóknarflokknum. Við það sætti Óskar sig ekki og fór fram á það að borgarstjóri rökstyddi aðdróttanir sínar, ellegar drægi orðin til baka og bæðist afsökunar. Óskar Bergsson.Á borgarráðsfundi í gær lagði borgarstjóri fram svar við fyrirspurn Óskars vegna málsins en Óskar segir í samtali við Vísi að svarið hafi að hans mati ekki verið fullnægjandi. „Það varð hins vegar að samkomulagi við Ólafur munum hittast með formanninum (Guðna Ágústssyni) til þess að fara yfir þessi ummæli. Ég held að það sé nauðsynlegt að menn hittist og ræði málin og hætti að skiptast á órökstuddum skeytasendingum," segir Óskar. Fundurinn verður eftir helgi að sögn Óskars.Þetta eru ekki fyrstu deilur Ólafs og Óskars því í síðasta mánuði lét borgarstjórinn þau orð falla að borgarstjórn setti niður við nærveru Óskars. Var það í kjölfar þess að Óskar spurði um aðkomu aðstoðarmanns borgarstjóra að vinnu við deiliskipulag við Laugaveg. Ólafur dró þessi ummæli síðar til baka.
Mest lesið Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Innlent „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Innlent Einum úr áhöfninni bjargað Erlent „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Innlent Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis Innlent Brotist inn og gert sig heimakominn Innlent Snjóruðningstæki sat fast Innlent Fleiri fréttir Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent