Alþjóðahús flutt á Laugaveginn 5. september 2008 12:31 Nýtt húsnæði Alþjóðahúss.
Alþjóðahús hefur flutt starfsemi sína á Laugaveg 37 frá Hverfisgötu 18 en þar hefur Alþjóðahús verið til húsa frá 2001, þegarþað var stofnað.Nýja húsnæðið er mun rúmbetra en það gamla enda hefur starfsemin aukist jafnt og þétt. Café Cultura, kaffihúsið sem rekið hefur verið í Alþjóðahúsi á Hverfisgötu, verður áfram þar til húsa. „Á undanförnum sjö árum hefur starfsemin aukist jafnt og þétt, en við stofnun voru starfsmenn 12 talsins og eru nú 23 í um 19 stöðugildum, auk íslenskukennara, túlka og þýðenda sem eru um 240 talsins," segir í tilkynningu. Nýja húsnæðið er á þremur hæðum auk kjallara og gott pláss í mótttöku fyrir fundahald ýmiss konar. „Í móttöku er hægt að nálgast fréttablöð og bæklinga sem tengjast innflytjendamálum, og heitt er á könnunni fyrir gestkomandi. Til stendur að vera með hádegisumræðufundi mánaðarlega og munu þeir vera auglýstir síðar. Verið er að koma kjallaranum í stand þessa dagana en þar munu m.a. menningarfélög, móðurmálskennsla og opið hús nýta sér aðstöðuna." Þá hefur verið gripið til þeirrar nýbreytni að að listamenn verða með sýningar á veggjum hússins í anda fyrri staðarhaldara hússins, Péturs Arasonar og Safnsins, og stendur nú yfir sýning á verkum Hjálmars Þorsteinssonar. „Verkin, sem eru 23 talsins eru í anda expressjónismans en Hjálmar flutti til Íslands 2006 eftir áratuga búsetu í Danmörku. Fólk er hvatt til að kíkja á sýninguna sem stendur út árið." Að auki er komið út haustblað FÓLKS, fréttablaðs Alþjóðahúss, en það er gefið út ársfjórðungslega. Allt efni er þýtt á ensku og pólsku, og valdar greinar á fleiri tungumál. Hægt er að nálgast blaðið í Alþjóðahúsi og á www.ahus.is, auk þess sem því er dreift í Bónus, Krónuna, Olís-stöðvar og fjölda fyrirtækja um land allt.
Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira