Ráðuneytisstjóri til Írans á vegum stjórnvalda 10. apríl 2008 11:10 Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, spurðist fyrir um ferðir ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins til Írans. MYND/GVA
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins fór til Írans fyrr á árinu á vegum íslenskra stjórnvalda til þess að greiða leið íslenskra fyrirtækja og vinna að hagsmunum Íslands í tengslum við framboð til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í morgun innti Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ráðherra eftir því á hvers vegum ráðuneytisstjórinn hefði verið í för sinni og vísaði meðal annars til ástands mannréttindamála í Íran. Ingibjörg Sólrún sagði ráðuneytisstjórann hafa farið á vegum utanríkisráðuneytisins meðal annars til þess að liðka fyrir íslenskum fyrirtækjum í landinu og til að ræða við íranska stjórnmálamenn um framboð Íslendinga til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Slíkt væri ævinlega gert þegar kostur væri á. Benti hún á að samskipti umheimsins við Íran hefðu ekki verið rofin og stjórnmálasambandi hefði ekki verið slitið við landi. Engin ástæða væri til þess að leggja stein í götu fyrirtækja sem væru í viðskiptum í landinu og vísaði ráðherra þar til lyfjafyrirtækisins Actavis. Ekki allt lýðræðisþjóðir sem styðja Ísland Jón Magnússon spurði í framhaldinu hvort þarna væri um stefnubreytingu að ræða hjá íslenskum stjórnvöldum þegar áhersla væri lögð á að ræða við Írana um framboð til Öryggisráðsins. Benti hann á að klerkastjórn væri við völd í landinu og spurði hann hvort markvisst væri verið að leita eftir stuðningi við framboðið óháð því hvar þjóðirnar stæðu. Þá spurði hann hvort verið væri að gera lítið úr þeim mannréttindum sem Íslendingar hefðu lagt áherslu á. Utanríkisráðherra sagði það eiga við um Íslendinga eins og aðrara þjóðir að þeir leituðu eftir stuðningi hjá þeim þjóðum sem ættu aðild að Sameinuðu þjóðunum. Ísland þyrfti atkvæði tveggja þriðju þjóða hjá samtökunum til að ná kjöri í Öryggisráðið og það segði sig sjálft að fjöldi þjóða sem styddu Ísland teldist ekki lýðræðisþjóðir í skilningi vestrænna ríkja. Íslendingar sæktust hins vegar eftir stuðningi á sínum eigin forsendum og þeir kynntu fyrir hvað þeir stæðu og myndu standa við það kæmust þeir í Öryggisráðið.
Mest lesið Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Erlent Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni Erlent Kalt í veðri miðað við árstíma Veður „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent Fleiri fréttir Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Sjá meira
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent