Vill upplýsingar um alþjóðasamninga og fundi vegna Icesave 17. nóvember 2008 13:01 MYND/GVA
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna og fulltrúi flokksins í utanríkismálanefnd, vill fund í nefndinni þar sem lögð verði fram og gerð opinber skjöl og gögn vegna samninga og funda í bankakreppunni.Þar á meðal eru öll gögn vegna umsóknar um lán til Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, samkomulag við Hollendinga sem fjármálaráðherra undirritaði í Washington vegna Icesave-deilunnar, skjöl vegna fundar fjármálaráðherra EES/ESB í Brussel 4. nóvember og skjöl sem tengjast vinnu embættismanna í framhaldinu undir forystu formennskulandsins Frakka ásamt bréfi sem fjármálaráðherra ritaði 6. eða 7. nóvember þar sem Ísland sagði sig frá því vinnuferli sem ákveðið var í lok áðurnefnds fjármálaráðherrafundar. Enn fremur vill Steingrímur lagaálit, ef einhver eru til, hjá íslenskum stjórnvöldum vegna Icesave-deilunnar og öll önnur skjöl hjá ráðuneytum og opinberum stofnunum sem tengjast þessum málum.„Þingflokkur VG átelur ríkisstjórnina fyrir að ganga frá samkomulagi um Ice-save reikningana án aðkomu Alþingis og krefst þess að málið verði tekið til lýðræðislegrar afgreiðslu og umræðu fyrir opnum tjöldum. Ríkisstjórnin hefur hundsað löggjafarþingið og haldið upplýsingum frá almenningi í þessu máli sem öðrum. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hvetur stjórnvöld til að breyta starfsháttum sínum og taka tafarlaust upp lýðræðislegar leikreglur, tryggja upplýsingagjöf til almennings og gegnsæi í ákvarðanatöku," segir einnig í tilkynningu frá Vinstri - grænum.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira