Sjötíu þúsund bílar á þremur árum 15. apríl 2008 12:04 MYND/GVA
Það lætur nærri að 70 þúsund bílar hafi verið fluttir inn til landsins á árunum 2005-2007 og nýjum íbúðum fjölgaði um 10.300 á sama tíma. Hins vegar fjölgaði landsmönnum um tæplega 20 þúsund manns á sama tímabili. Í Þjóðarbúskapnum, nýrri þjóðhagsspá fjármálaráðneytisins, kemur fram að að eftir öran vöxt undanfarin ár á íbúðamarkaði sé gert ráð fyrir að samdrætti og lækkun fasteignaverðs. Byggingaverktakar séu um þessar mundir með verulegan fjölda óseldra íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Bent er á að í fyrra hafi íbúðum fjölgað óvenjumikið, eða um nærri 4900. Þar af eru nærri 1500 íbúðir á Keflavíkurflugvelli sem eru í fyrsta sinn taldar með. Stærstur hluti íbúðanna er enn utan markaðarins en hluti þeirra er nú leigður til námsmanna. Þegar íbúðafjölgun áranna 2005-2007 er lögð saman kemur í ljós að 10.300 nýjar íbúðir hafa komið inn á markaðinn. Segir fjármálaráðuneytið að ýmislegt bendi til að fjölgunin hafi verið umfram þarfir markaðsins og ætla verði að þar með sé mikilli bylgju nýbygginga lokið að sinni. Dregur úr bílainnflutningi á næstunni Tölur um innflutta bíla benda einnig til mikillar þenslu. Segir fjármálaráðuneytið að það láti nærri að 70 þúsund bílar hafa verið fluttir inn samanlagt á árunum 2005-2007. „Mikil kaupmáttaraukning vegna hagvaxtar og auðsáhrifa frá eignaverði og hagstætt gengi skýra þessa þróun," segir í Þjóðarbúskapnum.Gert er ráð fyrir að bílainnflutningur dragist saman á næstunni af tvennum sökum, minnkandi vexti kaupmáttar og ekki síst vegna veikingar á gengi krónunnar.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira