Kreppan flækist ekki fyrir í sölu 200 milljóna glæsihýsa 9. júní 2008 17:10 Húsið er með eindæmum glæsilegt. MYND/Remax „
Eitt glæsilegasta hús borgarinnar teiknað af Skarphéðni Jóhannssyni- sannkallað tímamótaverk. Hér er byggt af djörfung og glæsimennsku, allt sérhannað," segir í lýsingu fasteignasölunnar Remax Torgs á einni veglegustu villu sem sést hefur í fasteignauglýsingum undanfarið. Tólf herbergi eru í húsinu, sem stendur við Ægisíðuna í Vesturbænum. Það er 496 fermetrar á tveimur hæðum og innréttað á hinn vandaðasta hátt. Sérvalinn harðviður er í öðru hverju horni, og steindur gluggi eftir Jón Engilberts listamann skreytir handsmíðaðan stiga á milli hæðanna. Nágrannarnir eru svo ekki af verri endanum, en í næsta húsi býr til að mynda Ottó Guðjónsson lýtalæknir. Þeir sem eru að spá að skipta út blokkaríbúðinni sinni geta líklega flestir gleymt því. Fasteignasali hjá Remax sem Vísir ræddi við sagði verð hússins líklega hlaupa á tvöhundruð milljónum. Hann sagði kreppu lítil áhrif hafa á sölu húsa af þessari stærðargráðu. Þau væru ekki á hverju strái, og þeir sem á annað borð séu að hugleiða að kaupa sér þak yfir höfuðið á tvöhundruð milljónir séu ekki ofurseldir svínslegum lánakjörum bankanna.
Mest lesið Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Lífið Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Lífið John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Gagnrýni Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Menning „Ég er skíthræddur“ Tónlist Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Menning Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Tónlist Fleiri fréttir Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Sjá meira