Hefði myrt Guðmund í Byrginu Kristinn Hrafnsson skrifar 26. maí 2008 11:30 "
Hefði þetta gerst fyrir 10 árum hefði ég framið morð á honum", segir Ragnar Hauksson sem réðst á Guðmund Jónsson, fyrrverandi forstöðumann Byrgisins fyrir hálfum mánuði. Ragnar er eiginmaður Mörtu Guðlaugsdóttur sem er ein þeirra fjögurra kvenna sem Guðmundur var nýverið dæmdur fyrir að brjóta gegn í Byrginu. Þau segja sögu sína í þættinum Kompási á Stöð 2 sem sýndur verður annað kvöld. Ragnar vissi fyrst af alvarleika málsins þegar hann las dóm Héraðsdóms Suðurlands á netinu. Lesturinn kom miklu róti á hug Ragnars sem segist ekki hafa getað á heilum sér tekið dögum saman. Hann hitti Guðmund fyrir tilviljun. "Vinur minn bauð mér að koma með sér í sumarbústað til þess að slaka á. En hver heldur þú að renni í hlað í næsta húsi? Guðmundur Jónsson! Ég snappaði bara", segir Ragnar. "Ég gekk greiðlega að honum og sló hann með handarbakinu og lófanum þvert og yfir moldarbeðið. Það var bara trúin og edrúmennskan sem hindraði mig í að ganga lengra. Hefði ég hitt á hann fyrir 10 árum hefði ég drepið hann. Ég hefði framið morð á honum," segir Ragnar og sér ekki eftir neinu. Guðmundur hefur kært hann fyrir líkamssárás en Ragnar kærir sig kollóttann. "Mér finnst ég ekki þurfa að svara fyrir það að löðrunga Guðmund Jónsson í Byrginu. Finnst þér það?" Hjónin Marta og Ragnar hafa ýtt myrkum minningum úr Byrginu aftur fyrir sig og horfa bjartsýn fram á veginn. "Hann skemmir ekki fyrir okkur. Við erum miklu sterkari en hann", segir Ragnar með vísan til Guðmundar, "við erum laus við þetta monster". Í Kompási á þriðjudag kl 21:50 er ítarlegt viðtal við Ragnar Hauksson og Mörtu Guðlaugsdóttur um Byrgismálið en þetta er síðasti þáttur vetrarins. Fyrst var greint frá Byrgismálinu í Kompásþætti sem sýndur var í desember 2006.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Fleiri fréttir Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin Sjá meira