Félagsmálaráðherra ætlar að beita sér í málum Fjölsmiðjunnar 26. maí 2008 15:51 MYND/Pjetur
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra segist munu gera það sem í hennar valdi stendur til þess að finna skjóta lausn á húsnæðismálum Fjölsmiðjunnar sem brátt verður húsnæðislaus. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins. Birkir vakti athygli á frétt Fréttablaðsins í dag þar sem fram kom að framtíð Fjölsmiðjunnar væri í hættu vegna þess að fjármuni vantaði til nýs húsnæðis. Fjölsmiðjan hefði verið stofnuð fyrir sjö árum og væri mikilvægt vinnumarkaðsúrræði fyrir fólk sem væri félagslega einangrað. Sagði Birkir að 70 manns hefðu verið þar í vinnu að undanförnu og það væri alvarlegt ef framtíð Fjölsmiðjunnar væri í óvissu. Þar sem félagsmálaráðuneytið væri eitt af stofnendum Fjölsmiðjunnar spurði Birkir hvað liði lausn málsins. Sagði hann sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vilja koma að málinu en það stæði upp á ríkisstjórn að gefa fyrirheit um fjárstuðning. Þá benti hann enn fremur á að Fjölsmiðjan starfaði á undanþágu frá brunavörnum og við því þyrfti að bregðast. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sagðist ekki hafa séð umrædda frétt en tók undir með Birki hversu mikilvægt starf Fjölsmiðjunnar væri. Hún sagði sérstakri nefnd hafa verið falið að fjalla um húsnæðisvanda Fjölsmiðjunnar en henni væri ekki kunnugt um niðurstöðu hennar. Sagðist Jóhanna myndu kynna sér stöðu málsins og sagði óviðunandi að húsnæðismál Fjölsmiðjunnar væru í óvissu. Hún benti á að þrjú ráðuneyti kæmu að málinu auk sveitarstjórna en hún myndi gera það sem í hennar valdi stæði til þess að finna skjóta lausn á málinu.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Fleiri fréttir Árásarmaður elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Sjá meira