UVG gagnrýna útvarpsstjóra harðlega 26. nóvember 2008 18:05 Páll Magnússon, útvarpsstjóri.
Ung vinstri græn hafa sent frá sér ályktun þar sem framganga Páls Magnússonar útvarpsstjóra, þegar hann hótaði fyrrverandi starfsmanni RÚV lögsókn, er harðlega gagnrýnd. „Ung vinstri græn gagnrýna harðlega framgöngu Páls Magnússonar útvarpsstjóra gagnvart G. Pétri Matthíassyni, fyrrum fréttamanni Ríkisútvarpsins, vegna ákvörðunar G. Péturs um að birta opinberlega viðtal við Geir Hilmar Haarde sem RÚV hefur haldið leyndu til þessa," segir í ályktuninni. Þá segir að viðbrögð útvarpsstjóra í málinu bera merki „ritskoðunar á fréttaefni sem kemur almenningi mjög við, og er grafalvarleg árás á málfrelsi fréttamanna. Ung vinstri græn skora á Pál Magnússon að biðjast afsökunar á að hafa hótað G. Pétri með lögfræðingum fyrir að hafa sýnt þjóðinni það sem RÚV hefur leynt hana, algerlega óviðeigandi framkomu forsætisráðherra gagnvart fjölmiðlamanni sem hafði í sér dug til að spyrja stjórnvöld erfiðra spurninga." UVG krefjast þess einnig að stjórnendur RÚV fari að fordæmi G. Péturs og biðji þjóðina afsökunar á að halda að sér upplýsingum um ráðamenn. „Ung vinstri græn telja að útvarpsstjóri setji hér skelfilegt fordæmi sem sendir þau skilaboð til stjórnmálamanna að þeir geti áfram hunsað eða jafnvel hótað fjölmiðlafólki sem spyrja gagnrýninna spurninga. Það hefur sjaldan verið jafn nauðsynlegt og einmitt nú að fjölmiðlar séu gagnrýnir og óvægnir í viðleitni sinni til að upplýsa þjóðina, sérstaklega í ljósi þess hvernig upplýsingaflæði til almennings hefur verið háttað á undanförnum vikum."
Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Neitað um lausn gegn tryggingu Erlent Fleiri fréttir Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Sjá meira