Sköllóttir fótboltamenn auglýsa Wella- hárvörur Sólmundur Hólm skrifar 12. júní 2008 06:30 Sköllótta wella-liðið Efri röð f.v.: Sigmundur Kristjánsson, Tómas Leifsson, Davíð Þór Viðarsson, Gunnlaugur Jónsson, Þórhallur Dan Jóhannsson og Ólafur Kristjánsson þjálfari. Neðri röð f.v.: Sigurbjörn Hreiðarsson, Peter Gravesen, Kristján Finnbogason, Arnar Gunnlaugsson, Bjarki Gunnlaugsson og Tryggvi Guðmundsson.Fréttablaðið/steinar Hugi „
Við erum alltaf að minna á vörurnar okkar og nú langaði okkur að tengja okkur við fótboltann og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Ásgeir Sveinsson, framkvæmdastjóri Halldórs Jónssonar ehf. sem er með umboð fyrir Wella. Blaðaauglýsing er væntanleg frá fyrirtækinu og skartar hún sköllóttum knattspyrnumönnum í aðalhlutverki. „Ég hafði verið með hugmynd í kollinum í langan tíma og hafði samband við Sigmund Kristjánsson félaga minn og fékk hann til að smala saman nokkrum glæsilegustu knattspyrnumönnum landsins. Þeir eiga það sameiginlegt að vera ekki meðal okkar uppáhaldsviðskiptavina þegar kemur að hárvörum, enda ekki með neitt hár. Þessir snillingar tóku hugmyndinni ótrúlega vel enda húmorinn í lagi.“ Tryggvi Guðmundsson er lykilmaður í liði sköllóttra knattspyrnumanna. Hann segist ekki hafa átt von á því þegar hár hans tók að þynnast að einn daginn myndi hann leika í auglýsingu fyrir hárvörur. „Nei, varla,“ segir Tryggvi. „En ég er nú gæddur þeim eiginleika að mér finnst gaman að gera grín að sjálfum mér.“ Honum lýst vel á liðið en viðurkennir að það mættu vera fleiri varnarmenn. „Já, þetta er alvöru lið og mjög góður hópur. Ég vildi fá Auðun Helgason í vörnina, en hann er enn í afneitun þannig að hann náði ekki inn,“ segir Tryggvi sem sjálfur gekk í gegnum skeið afneitunar. „Já hún er leiðinleg þessi afneitun. Við höfum allir lent í þessu. Verið að greiða yfir og allt hvað eina.“ Nú er það draumur Tryggva að hin sköllótta hersing skori á ellefu menn með afró á knattspyrnuvellinum og aldrei að vita nema draumurinn rætist. Það skýtur skökku við að einn í sköllótta Wella-liðinu, Davíð Þór Viðarsson FH-ingur, er hvergi nærri orðinn sköllóttur. „Nei ég er ekki sköllóttur, það er alveg rétt. Hins vegar viðurkenni ég fúslega að sú gæti orðið raunin eftir 5-10 ár. Faðir minn býr til að mynda svo vel að vera sköllóttur. Þannig að það er bara gaman að taka forskot sæluna,“ segir Davíð Þór Viðarsson, knattspyrnumaður og hármódel.
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ Sjá meira