Framtíðareiginkona mín er á Íslandi, segir Toby úr Rockstar:Supernova 21. ágúst 2008 11:57 Toby og Magni saman á Þjóðhátíð árið 2007. „
Ég elska Ísland svo mikið að ég ætla að láta húðflúra á mig íslensk orð," svarar Toby Rand ástralski söngvarinn sem söng eftirminnilega í sjónvarpsþættinum Rockstar:Supernova haustið 2006 ásamt Magna Ásgeirssyni. Hvað ertu að gera þessa dagana? „Hljómsveitin mín, Juke Kartel, er um þessar mundir að gefa út fyrsta smáskífuna í Ástralíu með lagi sem heitir Save Me. Við vorum í Seattle í hljóðveri og tókum upp myndband í Los Angeles og New York. Síðan er framundan hjá hljómsveitinni að spila um alla Ástralíu áður en við förum aftur til Los Angeles," svarar Toby. Hljómsveitin Juke Kartel ætlar að sækja Ísland heim. Saknar þú Íslands? „Já ég sakna fólksins sem býr í landinu. Allir eru svo fallegir á Íslandi, gestrisnir, almennilegir og líka alveg brjálaðir. Ég held að ástæðan fyrir því sé að sólin skín hjá ykkur 22 tíma á sólahring eða eitthvað í þá áttina." „Ég elska ástríðuna sem býr innra með Íslendingum. Þegar ég er á Íslandi líður mér eins og restin af heiminum sé ekki til. Oh, þið eigið fallegustu og mest kynþokkafyllstu konur í heiminum. Ég held að framtíðareiginkona mín er á Íslandi." Toby í Bláa lóninu. Ertu ennþá í sambandi við Magna síðan þið komust báðir áfram í lokaþátt Rockstar:Supernova haustið 2006? „Já ég tala mjög oft við Magna í gegnum tölvupósta og síma. Ég elska Magna því hann er frábær manneskja, rosalega duglegur og svo er hann líka gjafmildur." Er von á þér til Íslands bráðlega? „Ég og Magni erum að vinna í smáatriðum varðandi það. Mig langar að koma með hljómsveitina með mér og túra um landið ásamt Magna og hljómsveitinni Á móti sól. Ég vona að það gerist fljótlega því ég get ekki beðið eftir að koma aftur til Íslands. Ég sakna alls þaðan," segir Toby. Magni og vinir hans úr Rockstar:Supernova. Vísir hafði samband við Magna í kjölfar viðtalsins við Toby: „Hann er hress strákurinn," svarar Magni. „Toby er besti vinur minn eftir þáttinn og reyndar sá eini sem ég held ennþá sambandi við. Hann kemur alltaf fram af heiðarleika og hann er sannur vinur. Hann og restin af Juke Kartel eru ótrúlegir drengir. Hressir, lífsglaðir og alveg stórgóð hljómsveit." „Toby gæti alveg eins verið að austan. Hann er svona strákur sem maður finnst eins og maður hafi þekkt síðan í menntó. Það má eiginlega segja að Ástralir séu einhvernveginn líkari Íslendingum en margar aðrar þjóðir," segir Magni að lokum. Skoða heimasíðu Juke Kartel hér: www.myspace.com/jukekartel.
Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Lífið samstarf Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Stjörnum prýtt afmæli Nínu „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Deila fyrstu myndunum af hvort öðru „Mig hefði aldrei grunað að þetta ætti eftir að koma fyrir mig“ Skelfing greip um sig þegar björgunarbátnum hvolfdi Krakkatían: Borgari, bækur og aðfangadagur jóla Tommi Steindórs og Hrafnhildur trúlofuð Slagsmálin tengd hrósi, ekki framhjáhaldi Fékk veipeitrun Fréttatía vikunnar: Ofbeldi unglinga, Spotify wrapped og Kærleikskúlan Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Plötuðu Sigríði Andersen til að stíga í alvöru hundaskít Jólalegasti garðurinn í hverfinu og töff jólaskreytingar inni og úti „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Kveður fasteignir fyrir kroppa Róandi skýjadansari er litur ársins 2026 Mortal Kombat-stjarna látin Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Chanel og Snorri eiga von á syni Forritararnir borðuðu sveppina til að ná að vera aðeins lengur en hinir Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ „Ég er pínu meyr í dag“ Örlög Ísrael í Eurovision ráðast á aðalfundi sem hefst í dag Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði Sjá meira