Innlent

Grunaður innbrotsþjófur á höttum eftir köttum

Lögreglan fékk tvær tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir í gær, sem báðar byggðu á miklum misskilningi. Í því fyrra héldu lögreglumenn að húsi í Grafarvogi en tilkynning hafði borist um grunsamlegar mannaferðir. Það fylgdi með sögunni að maður hefði sést skríða inn um glugga á áðurnefndu húsi. Þegar lögreglan kom á staðinn og hafði tal af manninum reyndist háttalag hans eiga sér eðlilegar skýringar. Um vinnustað hans var að ræða en af ókunnum ástæðum komst maðurinn ekki inn um dyrnar og greip því til annarra ráða.

Í seinna tilvikinu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir á bifreiðastæði í Breiðholti. Þar sást maður sem grunur lék á að væri innbrotsþjófur. Hann var að skoða bíla hátt og lágt og áleit tilkynnandi að maðurinn hefði eitthvað illt í huga. Lögreglan var fljót á vettvang og spurði manninn hvaða erindi hann ætti á bifreiðastæðinu. Maðurinn reyndist hafa orðið fyrir því óláni að missa nokkra ketti úr vörslu sinni og var nú að reyna að endurheimta þá. Hann var með fulla vasa af kattarmat en maðurinn hafði skriðið árangurslaust meðfram nokkrum bílum í örvæntingarfullri tilraun til að lokka til sín kettina. Sú viðleitni hans hafði litlu skilað enda eru kettir þekktir fyrir flest annað en að láta vel að stjórn.

Lögreglan segir að þrátt fyrir að þessi dæmi skuli það tekið fram að betra sé að hringja einu sinni of oft í lögreglu en einu sinni of sjaldan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×