Frikki mun taka alla þessa kúkalabba í fjósið, segir Sverrir ea skrifar 16. maí 2008 09:08 "Þau mala náttúrulega keppnina," segir Sverrir Stormsker. "
Ég hef fylgst af alveg gríðarlegum áhuga með hinni miklu og stórbrotnu sigurgöngu Eurobandsins í Serbíu. Áhugi minn er óslökkvandi á öllu sem þeim viðkemur. Ég las einhversstaðar að þau hefðu verið gasalega vinsæl á einhverri sveitabjórkrá og ennþá vinsælli á einhverju flottu götuhorni þarna úti og það er ekki svo lítið," segir Sverrir Stormsker aðspurður um hans skoðun á Eurobandinu sem keppir fyrir Íslands hönd í Eurovision í ár. "Svo var víst einhver latexbakpoki sem bað Frikka um eiginhandaráritun á gasalega vinsælu almenningssalerni þannig að mér sýnist þau bara vera búin að slá rækilega í gegn og meika það svo um munar." "Samkvæmt þessu þá mala þau náttúrulega keppnina. Svo skilst mér að þau séu líka búin að vera á fullu í ræktinni og séu samanlagt komin niður í 200 kíló og ekki skemmir það fyrir. Það gæti meiraðsegja gert gæfumuninn í keppni sem þessari, ég tala nú ekki um ef þau verða þar að auki bæði brjóstahaldaralaus og í litríkum fötum með mikið glimmer í andlitinu og ennþá meira gel í hárinu og gríðarlega mikið meik í kringum augun." Eurovisionfarar 1988. Viddi í Greifunum, Guðmundur Jónsson, Sverrir Stormsker, Edda Borg, Þorsteinn í Stjórn. "Þá náttúrulega pakka þau þessu saman. Pottþétt mál. Verst að ég man ekkert eftir laginu en það er auðvitað aukaatriði. Ég ætla að veðja aleigunni á þau. Þau munu rúlla þessu upp. Frikki mun taka alla þessa kúkalabba í fjósið. Ekki nokkur einasta spurning," segir Sverrir Stormsker sem ásamt Stefáni Hilmarssyni var valinn fulltrúi Íslendinga í Eurovision árið 1988 með lagið Þú og þeir (Socrates). Lagið lenti í 16. sæti og vinningslagið það ár var frá Sviss, Ne Partez Pas Sans Moi. Socrates á Youtube
Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Konur leggja niður störf og krefjast jafnréttis Lífið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist Fleiri fréttir Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Sjá meira