Segir Paul Ramses ekki eiga ættingja hér á landi 9. júlí 2008 13:09
Jón Magnússon þingmaður Frjálslynda flokksins sendi í dag frá sér athugasemdir vegna fundar allsherjarnefndar Alþingis í gær. Þar var fjallað um mál Keníamannsins Paul Ramses og margir aðilar sem tengjast málinu kallaðir fyrir. Jón segir að ekkert liggi fyrir um pólitísk afskipti hans í Kenía, hann undrar sig einnig á því að Paul Ramses hafi sagst ætla aftur til Kenía þegar hann var hér og hann segir einnig að Paul eigi ekki ættingja hér á landi eins og haldið hefur verið fram. Hér fyrir neðan má sjá athugasemdir Jóns Magnússonar sem hann sendi frá sér í dag.Á fundi Allsherjarnefndar Alþingis þ.8.7.2008 sem haldinn var skv beiðni VG vegna máls Paul Ramses kom m.a. fram:(PR skammstöfun Paul Ramses) Paul Ramses var ekki brottvísað, hann var framseldur til réttra yfirvalda þ.e. Ítalíu skv. ákvæðum Schengen samningsins með vísan til Dyflinar samkomulagsins. Miðað við þær reglur virðist ljóst að það var aldrei verkefni Útlendingastofnunar að fjalla um mál PR. Eiginkona PR hefur ekki sótt um hæli hér á landi. Þau kusu að afgreiða málið ekki sameiginlega. Konan kom í des. 07 og skorað var á hana að fara í jan. s.l. PR kom til landsins þ.12.1.05-30.8.05 sem styrkþegi til náms. Dvöl framlengd til 1.1.2006 Umsókn um atvinnuleyfi 15.11.05 Synjað af Vinnumálastofnun 3.4.2006 PR fær síðan atvinnuleyfi 8.6.06 til 31.10.06 Sótt um áframhaldandi atvinnuleyfi 23.8.06 Synjað. Tilynnt að sé farinn í nóvember 06. Júní 2007 PR og eiginkona sækja um dvalarleyfi. Ekki heimilað. Jan 2008 Ákvörðun um framsal, Rauði krossinn biður um að brottför verði frestað fram yfir barnsburð konunnar. PR er af Luo ættbálknum í Kenýa. Ekkert liggur fyrir um kosningabaráttu hans, pólitísk afskipti, gilt hjúskaparvottorð eða annað. Þau mál voru aldrei könnuð af því að um hælismálið var aldrei fjallað hér. Þegar kona PR kom í mæðraskoðun segist hún hafa dvalarleyfi í Svíþjóð og það er vitað af PR í landinu þegar hann borgar fyrir skoðunina. Þá segir PR að hann hafi komið í gegn um Ítalíu og ætli aftur til Kenýa. Tengsl PR við landið: Hefur unnið á veitingastaðnum Vegamót og fyrir ABC samtökin. Hefur kynnt Kenýa í Alþjóðahúsi. Hann á ekki ættingja hér á landi. Af hálfu Alþjóðahúss var tekið fram að ekki væru gerðar athugasemdir við vinnubrögð Útlendingastofnunar. Fulltrúar Alþjóðahúss tóku fram að það sem spurning gæti verið um hér væri sanngirnissjónarmið. Rauði krossinn gerir heldur ekki athugasemdir við vinnubrögð Alþjóðahúss. Talsmaður Amnesty International telur að það hefði átt að skoða einstaklingsbundnar aðstæður PR og telur tengsl við landið réttlæta frávík.
Mest lesið Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Innlent Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Veður Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Innlent Fleiri fréttir Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Sjá meira