Ég fór á fyllerí, Eiður fór að sofa 6. janúar 2008 13:29 Danny Brown í leik gegn Wolves í gær NordicPhotos/GettyImages
Breska blaðið Sun birti skemmtilegt viðtal við knattspyrnumanninn Danny Brown um helgina þar sem hann rifjar upp hvernig stór mistök eyðilögðu stóra tækifærið hans fyrir áratug. Brown er 27 ára gamall og er fyrirliði neðrideildarliðsins Cambridge United. Lið hans féll úr enska bikarnum í gær þegar það tapaði 2-1 fyrir Wolves, en ef liðið hefði óvænt komist áfram í keppninni - hefði Brown örugglega fagnað manna minnst. Í viðtali við Sun rifjar hann nefnilega upp hvernig glappaskot sem hann gerði þegar hann var 17 ára gerði út um stóra tækifærið hans. Fyrir 10 árum var Brown þannig unglingaliðsmaður hjá Leyton Orient og var ekki einu sinni kominn í aðalliðið þar þegar útsendarar Bolton komu auga á hann og vildu kaupa hann fyrir stórfé og fá hann í úrvalsdeildina. Þarna var stóra tækifærið komið og Brown var komið fyrir á hótelherbergi við hliðina á Eiði Smára Guðjohnsen sem þá var að stíga sín fyrstu skref með liðinu. "Ég fór til Bolton til að skoða aðstæður og hitta stjórann, Colin Todd. Hann kom mér fyrir á hóteli með Eiði Guðjohnsen og sagði mér að hafa ekki áhyggjur af hótelreikningnum - félagið myndi sjá um hann. Ég var aðeins 17 ára gamall og var í fyrsta skipti á ferlinum að smakka á velgengni." "Ég ákvað því að hringja í nokkra félaga mína og halda upp á þetta. Við héldum partí á hótelinu þrátt fyrir að nokkrir af okkur væru ekki nógu gamlir til að drekka. Það stóð yfir í nokkra daga og ég pældi ekkert í því fyrr en ég fékk símtal og var boðaður á fund með stjóranum," sagði Brown, sem fljótlega vaknaði upp af draumnum. Eiður Smári spilar á stóra sviðinu meðan Brown er í harkinu með CambridgeNordicPhotos/GettyImages Svíður að sjá Eið spila með Barcelona "Hann sýndi mér hótelreikninginn og bað mig að útskýra reikning upp á 7,500 pund (916,000 krónur). Mér krossbrá af því ég hélt að reikningurinn væri tíu sinnum lægri. Ég trúði þessu ekki, en stjórinn sagði mér að koma mér aftur til London og ég gleymi aldrei því sem hann sagði við mig. Hann sagði ´þetta gekk allt svo vel hjá þér þangað til við sáum hótelreikninginn´" Brown var sendur aftur til Orient með skottið milli lappanna og þurfti þar að útskýra kjánalega sögu sína fyrir gamla þjálfaranum sínum, en félagið hafði vonast til þess að fá góðan pening fyrir söluna á Brown. "Stjórinn trúði því ekki þegar ég sagði honum söguna mína. Hann fékk áfall," sagði Brown, sem síðan hefur spilað áfram með liðum í neðri deildunum á Englandi. "Ég er slæmt fordæmi fyrir alla unga atvinnumenn sem halda að þeir geti fengið allt upp í hendurnar og í hvert skipti sem umboðsmaður minn lendir í vandræðum með unga leikmenn - biður hann mig að tala við þá. Ég segi þeim þá að ástæða þess að Eiður Smári Guðjohnsen náði árangri en ekki ég - sé sú að hann fór að sofa á kvöldin þessa örlagaríku daga en ekki ég," sagði Brown en bætir við að hann sé ekki sami maðurinn í dag."Ég er allt annar maður í dag og sé mikið eftir því sem gerðist. Sérstaklega þegar ég sé Eið Smára spila fyrir Barcelona í sjónvarpinu. En það er aldrei of seint að gera góða hluti. Hver veit hvað gerist ef ég á góðan leik gegn Wolves í bikarnum?" sagði Brown - sannarlega reynslunni ríkari.
Enski boltinn Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Sjá meira