Séra Gunnar sýknaður 2. desember 2008 22:02 Séra Gunnar Björnsson var sýknaður í héraðsdómi í dag.
Séra Gunnar Björnsson sóknarprestur á Selfossi var sýknaður í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Þetta kom fram í seinnifréttum Sjónvarpsins nú í kvöld. Ríkissaksóknari ákærði séra Gunnar fyrir kynferðisbrot gegn tveimur unglingsstúlkum. Alls kærðu fimm stúlkur Gunnar en mál þriggja þeirra voru látin niður falla, þar sem ekki var talið að þau myndu leiða til sakfellingar. Gunnar var ákærður fyrir kynferðislega áreitni og blygðunarsemisbrot, en stúlkurnar voru sóknarbörn hans á þeim tíma sem brotin áttu að hafa verið framin. Í úrskurði héraðsdóms í málinu segir að orð hafi staðið gegn orði en framburður beggja stúlknanna þótti trúverðugur. Það þótti framburður Gunnars einnig og því taldi dómurinn að ekki væri hægt að færa sönnur á að brotin hefðu verið framin. Í niðurstöðu dómsins segir m.a að Gunnari hafi verið gert að sök að hafa framið kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa faðmað aðra stúlkuna og strokið henni á baki utanklæða og látið þau orð falla að honum liði illa og straumarnir streymdu úr líkama hans við það að faðma hana. Í dómnum segir að framburðum stúlkunnar og Gunnars beri að mestu leyti saman um samskipti þeirra. „...með framburði ákærða og stúlkunnar, að ákærði hafi faðmað hana, strokið henni á baki utanklæða og látið þau orð falla að honum liði illa eins og greint er í ákæru. Ákærði hefur hins vegar ekki kannast við að hafa látið þau orð falla að straumarnir streymdu úr líkama hans við það að faðma hana, eins og hún lýsti í sinni skýrslu, heldur hafi hann sagt sem svo: „Gefðu mér nú kraft A mín" þar sem hann hafi ekki verið alveg hress." Um þennan ákærulið segir að orð standi á móti orði hvað þetta varðar. „Er að þessu leyti ekki við annað að styðjast en trúverðugan framburð stúlkunnar og þá frásögn móður hennar, af því hvað stúlkan sagði þegar hún kom út í bíl, að ákærði hefði spurt stúlkuna hvort hún fyndi ekki straumana á milli þeirra. Að þessu athuguðu þykir, gegn neitun ákærða frá upphafi, og þar sem framburður hans þykir í sjálfu sér einnig trúverðugur, ekki komin fram sönnun um að hann hafi þá jafnframt látið þau orð falla að straumarnir streymdu úr líkama hans við það að faðma hana."
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Þúsundir hælisleitenda synt til Ceuta á nokkrum klukkustundum Erlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting Sjá meira