Ökuþórar segjast hafa gætt fyllsta öryggis 27. maí 2008 16:07
Myndband sem birtist á Vísi í gær og sýnir þegar bíl er velt í iðnaðarhverfi í Grafarvoginum hefur vakið athygli. Mennirnir sem hlut áttu að máli eru ósáttir við umfjöllun fjölmiðla í málinu og höfðu samband við Vísi til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Þeir segja enga hættu hafa verið á ferðum enda hafi ökumaðurinn verið vel búinn og götunni lokað á meðan á akstrinum stóð. Þeir Hafliði Þór Þorsteinsson og Guðbjartur Ægir Ágústsson segjast hafa gert öflugar öryggisráðstafanir til þess að koma í veg fyrir slys og meðal annars lokað götunni þar sem veltan var framkvæmd. Bíllinn hafi verið búinn veltibúri auk þess sem ökumaðurinn hafi verið með hjálm og í hlífðarfatnaði. Mennirnir benda einnig á að ekki hafi verið farið yfir leyfilegan hámarkshraða í götunni sem sé fimmtíu kílómetrar á klukkustund og að vel hafi verið gætt að því að engin væri á ferð þegar látið var til skarar skríða. Lögregla kom á staðinn eftir að bílnum hafði verið velt eins og sést í myndbandinu og segja þeir félagar að lögreglumaðurinn hafi ekki gert athugasemdir við bílveltuna aðrar en þær að þeir skyldu þrífa vel eftir sig. Í fréttum af málinu í gær var haft eftir lögreglunni að verið væri að kanna málið en á myndbandinu sést að lögreglumaður kemur á vettvang. Myndband af veltunni má sjá hér. Nánar verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Sjá meira