Lífið

El Perro Del Mar á Airwaves

Sarah Assbring, öðru nafni El Perro Del Mar, sem mætti þýða sem Sæhundurinn.
Sarah Assbring, öðru nafni El Perro Del Mar, sem mætti þýða sem Sæhundurinn.

Sænska söngkonan El Perro Del Mar hefur staðfest þátttöku sína í Iceland Airwaves í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar. Enn vilja þeir þó ekki staðfesta komu Vampire Weekend sem Vísir sagði frá í síðustu viku að muni spila á hátíðinni samkvæmt MySpace síðu sveitarinnar.

El Perro Del Mar er ein af vonarstjörnum skandínavísku poppsenunnar og hefur sent frá sér tvær breiðskífur, sú síðasta, From the Valley to the Stars, kom út í febrúar.

Umsóknarfrestur liðinn

Umsóknarfresturinn fyrir íslensku böndin rann út síðastliðinn föstudag. Eftir hæga byrjun byrjuðu umsóknirnar að streyma hratt og þegar allt kom til alls reyndust aldrei hafa borist fleiri umsóknir en nú, eða langt yfir 200.

Starfsfólk Iceland Airwaves vinnur nú hörðum höndum að fara yfir þær allar og verður búið að svara öllum umsóknum fyrir þann 1. september.

Nú hafa 21 erlend hljómsveit og 32 íslenskar hljómsveitir vera staðfestar á Iceland Airwaves 2008. Á næstu dögum og vikum mun bætast hratt á þennan lista.

Staðfestir erlendir listamenn á Iceland Airwaves 2008:

Boys In A Band (FO), Crystal Castles (CA), CSS (BR), Dirty Projectors (US), El Perro Del Mar (SE), Familjen (SE), Final Fantasy (CA), Florence & The Machine (UK), Ghost (FO), Jerry Bouthier (FR), Junior Boys (CA), Miracle Fortress (CA), Planningtorock (DK), P'NAU (AUS), Robots In Disguise (UK), Simian Mobile Disco (UK), Therese Aune (NO), These New Puritans (UK), Young Knives (UK), White Lies (UK) og Yelle (FR).

Staðfestir íslenskir listamenn á Iceland Airwaves 2008:

Agent Fresco, Bloodgroup, Borko, Blindfold, Bryndís, Dikta, Dr. Spock, Dýrðin, Esja, FM Belfast, Ghostigital, Gluteus Maximus, Gus Gus, Hjálmar, Hjaltalín, Jeff Who?, Mammút, Megas og Senuþjófarnir, Motion Boys, Ólafur Arnalds, Retro Stefson, Reykjavík!, Seabear, Sign, Singapore Sling, Skakkamannage, Sometime, Sprengjuhöllin, Steed Lord, Sign, Ultra Mega Teknóbandið Stefán og Æla.






Tengdar fréttir

Airwaves aldrei glæsilegri á afmælisári

CSS, Yelle, Crystal Castles og Simian Mobile Disco eru á meðal hljómsveita sem troða munu upp á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Rétt í þessu var að ljúka blaðamannafundi á veitingastaðnum Panoroma þar sem Þorsteinn Stephensen, eigandi Hr. Örlygs sem á og rekur Iceland Airwaves tónlistarhátíðina, fór yfir þann styr sem staðið hefur um hátíðina að undanförnu.

Vampire Weekend á Airwaves

New York sveitin Vampire Weekend spilar á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í október ef marka má MySpace-síðu sveitarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.